10.
febrúar 2022
Stjórn Vísindasjóðs auglýsir eftir umsóknum úr B-hluta sjóðsins. Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2022. Markmið sjóðsins er að stuðla að aukinni fræðimennsku í hjúkrun með því að styrkja rannsóknir og fræðiskrif hjúkrunarfræðinga. Aðild að sjóðnum eiga allir þeir hjúkrunarfræðingar sem eru félagsmenn í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og launagreiðendur hafa greitt fyrir í Vísindasjóð á árinu 2021.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Vísindasjóðs.