Hjukrun.is-print-version

Greiðsla styrkja úr Vísindasjóði

RSSfréttir
15. febrúar 2022

Þann 14. febrúar voru greiddir út styrkir úr vísindasjóði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Fyrir ári var gerð sú breyting að félagsmenn fá nú greiddan styrk sem nemur 45% af þeirri fjárhæð sem greidd hefur verið inn í vísindasjóð fyrir þá af hálfu launagreiðanda, í stað 95% áður. Undantekning frá þessu er að hjúkrunarfæðingar sem starfa hjá sveitarfélögunum fá enn greitt samkvæmt eldra fyrirkomulagi. Fjárhæðin sem eftir stendur er færð yfir í starfsmenntunarsjóð, en samhliða þessari breytingu var styrkur úr starfsmenntasjóði hækkaður í 240.000 kr. á 24 mánaða tímabili. Þessi breyting hefur engin áhrif á úthlutanir úr B-hluta vísindasjóðs sem veitir styrki til rannsóknar- og vísindastarfa.

Breytingar á reglum vísindasjóðs eru meðal þeirra breytinga sem tóku gildi við samþykkt  miðlunartillögu ríkissáttasemjara sumarið 2020, en þar má að auki finna ákvæði um heimild félagsmanna til allt að 10 daga réttar til sí- og endurmenntunar árlega.

Heildarfjárhæð styrkja úr A-hluta vísindasjóðs í ár nam 167 millj.kr, samanborið við 137 millj.kr. í fyrra. Styrkur var í ár greiddur til 3.623 félagsmanna. Meðalstyrkur ársins nemur 46 þús.kr. en hann var 39 þús.kr. í fyrra.

Í einhverjum tilvikum gekk ekki að greiða styrk ársins til félagsmanna og er það ýmist vegna þess að bankaupplýsingar vantar eða að þær eru ranglega skráðar. Við hvetjum félagsmenn Fíh því til að fara inn á Mínar síður og athuga hvort að bankareikningsupplýsingar séu rétt skráðar, en þær má skoða og lagfæra undir liðnum Persónuupplýsingar. Vinsamlegast sendið jafnframt póst á hjukrun@hjukrun.is þegar greiðsluupplýsingar hafa verið uppfærðar til að greiðsla geti átt sér stað.
Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála