Hjukrun.is-print-version

Ragnheiður Ósk einn aðalfyrirlesara á Hjúkrun 2022

RSSfréttir
28. febrúar 2022

Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu og maður ársins 2021 er einn aðalfyrirlesara ráðstefnunnar Hjúkrun 2022.

Ragnheiður Ósk, hóf störf sem framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins 1. desember 2019. Ragnheiður Ósk hefur starfað hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins frá árinu 2004; fyrst sem sviðsstjóri skólasviðs á Miðstöð heilsuverndar barna og síðar á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu. Hún hefur komið að kennslu við HÍ, HA og HR. Ragnheiður Ósk hefur auk þess, stýrt og tekið þátt í, ýmsum þróunar- og rannsóknarverkefnum, bæði á landsvísu og í alþjóðlegu samstarfi. Eitt af þessum verkefnum var að taka þátt í þróun sérnáms í heilsugæsluhjúkrun sem er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og heilbrigðisstofnana og var hún kennslustjóri þess sérnáms fyrstu árin. Ragnheiður Ósk er með MS í hjúkrunarfræði frá HÍ, MA í mannauðsstjórnun frá HÍ, og BS í hjúkrunarfræði frá HA.

Nánari upplýsingar um Hjúkrun 2022 er á vef ráðstefnunnar, og þar er einnig hægt að skrá sig til leiks.

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála