Hjukrun.is-print-version

Skattframtal 2022

RSSfréttir
7. mars 2022

Nú fer að líða að því að skila eigi inn skattframtali og því minnum við þá félagsmenn sem fengu styrk á árinu 2021 að huga að því að færa kostnað til frádráttar á móti styrkgreiðslum. Frádrátturinn getur aldrei orðið hærri en móttekin greiðsla. Í þeim tilfellum þar sem styrkir eru ekki skattskyldir þarf að færa kostnað til frádráttar á móti styrk á skattframtali.

Styrkir úr Starfsmenntunarsjóði, Styrktarsjóði og Vísindasjóði birtast sjálfkrafa á netframtali félagsmanna. Hægt er að skrá kostnað á móti styrkjum úr Starfsmenntunarsjóði og vegna greiðslna úr Vísindasjóði.

Styrkir til náms, rannsókna og vísindastarfa eru skattskyldar tekjur, en á móti styrk er heimilt að færa til frádráttar beinan kostnað við nám, s.s. skólagjöld og námsbækur. Ekki er heimilt af færa til frádráttar kostnað við framfærslu sem telst vera persónulegur kostnaður. Þá er óheimilt er að færa kostnað vegna kaupa á eignum til frádráttar á móti þessum styrkjum.

Á móti styrkjum úr Vísindasjóði sem teljast til rannsókna og vísindastarfa er heimilt að færa beinan kostnað við hvert verkefni. Oft er um að ræða styrki vegna tiltekinna lengri og umsvifameiri verkefna sem eru þá gerð upp eins og rekstur. Einnig er hægt að færa frádrátt á móti styrkjum úr Styrktarsjóði vegna líkamsræktar og endurhæfingar (t.d. sjúkraþjálfun, nudd, nálastungur og kirópraktor), heimilt er að færa til frádrátt á móti upp að hámarki 60.000 kr.

„Ekki skal telja til tekna starfsmanns greiðslu frá launagreiðanda, eða eftir atvikum stéttarfélagi, sem ætlað er að standa straum af kostnaði við íþróttaiðkun og aðra heilsurækt að því marki sem slík greiðsla fer ekki yfir 60.000 kr. á ári. Skilyrði er að starfsmaður leggi fram fullgilda og óvefengjanlega reikninga fyrir greiðslu á viðkomandi kostnaði.

Með kostnaði við íþróttaiðkun og heilsurækt er átt við greiðslu á aðgangi að líkamsræktarstöðvum, sundlaugum, golfvöllum og skíðasvæðum, kostnað vegna þátttöku í íþróttanámskeiðum, greiðslu á æfingagjöldum í íþróttasali og félagsgjöldum í golfklúbba og hestamannafélög sem og þátttökugjöld vegna annarrar hreyfingar sem stunduð er með reglubundnum hætti, þ.m.t. vegna einkaþjálfunar hvort sem hún er stunduð innan- eða utandyra eða í gegnum fjarþjálfun. Einnig fellur hér undir kostnaður við aðgang að annarri heilsurækt eins og t.d. jóga og annar sambærilegur kostnaður, þ.m.t. kostnaður vegna endurhæfingar sem er sambærileg og önnur íþróttaiðkun. Þá fellur hér undir kostnaður vegna skipulegra gönguferða.“

Frádráttur á móti námsstyrkjum færist í reit 149 á skattframtali og í reit 157 vegna líkamsræktar- og endurhæfingarstyrkja.

Aðrir styrkir styrkir eru skattskyldir. Ekki er heimilt að færa frádrátt á móti styrkjum (persónuleg útgjöld), vegna gleraugnakaupa, heyrnartækjakaupa, glasafrjóvgunar, krabbameinsskoðunar, tannviðgerða, sálfræðiþjónustu og útfarar.

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála