Hjukrun.is-print-version

Tillögur til lagabreytinga og önnur mál

RSSfréttir
25. mars 2022
Fimmtudaginn 12. maí næstkomandi verður aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldinn á Hilton Reykjavík Nordica.

Vakin er athygli á að tillögur til lagabreytinga skulu hafa borist stjórn félagsins fyrir 14. apríl. Hið sama gildir um önnur mál sem félagsmenn óska eftir að tekin verði fyrir á aðalfundi. Tillögur og önnur mál sendist á netfangið formadur@hjukrun.is.

Allir félagsmenn hafa rétt til setu á aðalfundi. Atkvæðisrétt hafa félagsmenn með fulla aðild, fagaðild, lífeyrisaðild og nemendur í hjúkrunarfræði sem þiggja laun samkvæmt kjarasamningi Fíh , sem skrá sig til þátttöku á fundinn fyrir 5. maí. Félagsmenn sem skrá sig eftir þann tíma hafa ekki atkvæðisrétt.

Boðið verður upp á streymi af aðalfundi fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.
Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála