Hjukrun.is-print-version

Veist þú hver á að fá Hvatningarstyrk?

RSSfréttir
5. apríl 2022

Óskað er eftir tilnefningum fyrir Hvatningarstyrk Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 2022.

Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, í samráði við stjórn Vísindasjóðs félagsins, hefur ákveðið að veita hvatningarstyrki til frumkvöðla í þróun og eflingu hjúkrunar á Íslandi. Styrkjunum er ætlað að styðja þessa frumkvöðla til að afla sér frekari þekkingar og/eða þjálfunar sem nýtist þeim til að þróa enn frekar nýsköpunarverkefni sem tengjast hjúkrun og þeir eru í forsvari fyrir eða leiða. Um er að ræða fjóra 500.000.- króna styrki.

Allir félagar í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga geta tilnefnt þann frumkvöðul í þróun og eflingu hjúkrunar og rökstutt valið á þeim sem þeir telja að hljóta eigi styrk.

Síðasti skiladagur tilnefninga er 26. apríl 2022.

Búið er að loka fyrir tilnefningar

Hvatningarstyrkirnir verða formlega veittir á aðalfundi Fíh þann 12. maí næstkomandi. 

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála