Fimmtudaginn 12. maí næstkomandi verður aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldinn á Hilton Reykjavík Nordica.
Allar tillögur til lagabreytinga þurfa að berast stjórn félagsins fyrir fimmtudaginn 14. apríl. Hið sama gildir um önnur mál sem félagsmenn óska eftir að tekin verði fyrir á aðalfundi.
Tillögur og önnur mál sendist á netfangið formadur@hjukrun.is.
Allir félagsmenn hafa rétt til setu á aðalfundi. Atkvæðisrétt hafa félagsmenn með fulla aðild, fagaðild og lífeyrisaðild sem skrá sig til þátttöku á fundinn fyrir 5. maí. Aðrir fundarmenn hafa þar ekki atkvæðisrétt.
Opnað verður fyrir skráningu síðar í þessum mánuði.
Boðið verður upp á streymi af aðalfundinum líkt og í fyrra fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.