Félagsmönnum Fíh gefst kostur á að leigja íbúð á Akureyri. Það opnar fyrir bókanir þann 13.apríl kl. 10:00.
Tímabil útleigu er 14.apríl til 8.sept 2022. Ein vika í senn, frá fimmtudegi til fimmtudags.
Fyrstur kemur fyrstur fær.
Íbúðin er á Davíðshaga 6, íbúð 206.
Nánari lýsingu og myndir má sjá á orlofsvefnum.
Íbúðin er 78 fermetrar og er á annarri hæð í fjögurra hæða fjölbýlishúsi með lyftu. Þegar komið úr lyftunni er beygt til vinstri, upp 9 þrep og út á svalagang. Íbúðin skiptist í alrými með stofu og eldhúsi með stækkanlegu eikarborðstofuborði. Þar má finna sjö stóla ásamt öllum venjulegum eldhúsbúnaði, ísskáp, örbylgjuofn og uppþvottavél. Í baðherberginu er sturta, þvottavél, þvottagrind, ryksuga og allar ræstivörur. Þrjú svefnherbergi, eitt með tvíbreiðu rúmi (160x200cm), annað með svefnsófa og þriðja með 120 cm breiðu rúmi. Í stofunni er sjónvarp og DVD-tæki. Á svölunum er útvarp og gasgrill ásamt borði og tveimur stólum. Eitt bílastæði fylgir íbúðinni.
Fermetrar |
78 |
Barnarúm- ferða |
já |
Uppþvottavél |
Já |
Fjöldi svefnherbergja |
3 |
Barnastóll |
Já |
Þvottavél- |
Já |
Svefnloft |
Nei |
Sjónvarp |
Já |
Örbylgjuofn |
já |
Svefnsófi í herb. |
já |
DVD-spilari |
nei |
Ræstiefni til að þrífa |
Já |
Dýnur |
Nei |
Útvarp |
Já |
Grill |
já |
Fjöldi sænga og kodda |
5 |
Borðbúnaður, fjöldi |
8 |
Heitur pottur |
Nei |
Fjöldi rúma |
4+svefnsófi |
Eldavél með ofni |
Já |
skiptidagar |
Fimmtud. |
Netsamband er í íbúðinni. Aðgangur er að myndlykli og Netflix, sjá leiðbeiningar í húsi.