Laust er til umsóknar starf framkvæmdastjóra hjúkrunar á Reykjalundi endurhæfingu ehf. Um er að ræða 100% starf. Allt að 50% hluti starfsins er þátttaka í klínískum verkefnum.
Umsóknarfrestur er til 2. maí 2022.
Framkvæmdastjóri hjúkrunar situr í framkvæmdastjórn Reykjalundar og heyrir undir forstjóra. Hann ber ábyrgð á hjúkrunarþjónustu starfseminnar á báðum meðferðarsviðum Reykjalundar. Jafnframt er hann sviðsstjóri á meðferðarsviði 2. Hann skipuleggur og samhæfir faglegt meðferðarstarf í samvinnu við aðra framkvæmdastjóra. Hann tryggir mönnun hjúkrunarfræðinga í teymum og vinnur að framgangi markmiða, stefnu og sýn Reykjalundar.
Hæfnis- og menntunarkröfur
-
Íslenskt hjúkrunarleyfi skv. lögum 34/2012, um heilbrigðisstarfsmenn.
-
Klínísk framhaldsmenntun og/eða starfsreynsla á sviði endurhæfingar og/eða stjórnunar.
-
Þekking á rekstri heilbrigðisstofnana.
-
Þekking og reynsla af þverfaglegri teymisvinnu.
-
Leiðtogahæfileikar og stjórnunarreynsla.
-
Þekking og reynsla af mannauðsmálum.
-
Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
-
Frumkvæði og metnaður í starfi.