Hjukrun.is-print-version

Ólöf ráðin framkvæmdastjóri hjúkrunar á Reykjalundi

RSSfréttir
25. maí 2022

Ólöf Árnadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hjúkrunar á Reykjalundi. Hún tekur við starfinu af Láru Margréti Sigurðardóttur sem lét nýverið af störfum eftir rúmlega tuttugu ára starf.

Ólöf er menntuð hjúkrunarfræðingur og einnig MS gráðu í stjórnun í heilbrigðisþjónustu.

Hún hefur víðtæka starfsreynslu frá störfum sínum á Norðurlöndum og hér heima og langa reynslu af hjúkrunarstjórnun, aðallega frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands þar sem hún hefur starfað undanfarin ár. Ólöf hefur í störfum sínum öðlast mikla reynslu af þverfaglegri samvinnu heilbrigðisstétta, innleiðingu nýrra kerfa, nýtingu mannauðs, endurskipulagningu eininga og daglegri stjórnun hjúkrunar. Hún hefur jafnframt yfirgripsmikla klíníska reynslu sem hjúkrunarfræðingur og lagt rækt við þau tengsl samhliða stjórnunarstörfum, bæði hérlendis og erlendis.

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála