Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Fíh, gagnrýnir harðlega skipun starfshóps heilbrigðisráðherra sem meta á möguleika þess að afnema refsiábyrgð heilbrigðisstarfsfólks vegna atvika í heilbrigðisþjónustu sem rakin eru til einfalds gáleysis.
Í starfshópnum er enginn hjúkrunarfræðingur. Hjúkrunarfræðingur ber í dag lagalega ábyrgð á störfum sínum og þeirri hjúkrunarmeðferð sem innt er af hendi. Um er að ræða fjölmennustu fagstétt heilbrigðisþjónustunnar sem á í hvað mestum samskiptum við skjólstæðinga, hjúkrunarfræðingar eiga því brýnt erindi í starfshópinn.
Hjúkrunarfræðingar hafa á síðustu árum mátt þola ámælisverða framgöngu af hálfu yfirvalda þegar kemur að einstaka málum sem hægt er að rekja til kerfisbundinna þátta.
Fíh hefur sent ráðherra bréf þar lýst er megnri óánægju með skipunina og gerð er skýlaus krafa um að hjúkrunarfræðingur hljóti skipun í starfshópinn.
Fíh hefur margsinnis kallað eftir tillögum að lagabreytingum í tengslum við tilkynningar, rannsókn og málsmeðferð alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu þar sem hjúkrunarfræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólk kemur við sögu, nú síðast á aðalfundi fyrr í þessum mánuði.
Þrátt fyrir að lofað sé samráði við hagsmunaaðila, þá blasir við að vinna starfshópsins, sem kallað hefur verið eftir lengi, verði verulega skert ef hópurinn getur ekki horft á málið, m.a. frá sjónarhóli hjúkrunarfræðinga. Fíh bindur vonir við að ráðherra sjái að sér og skipi hjúkrunarfræðing í starfshópinn.