Sérfræðingur í kjaramálum
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leitar starfsmanni á kjara- og réttindasvið félagsins. Viðkomandi þarf að vera talnaglöggur og hafa ríka þjónustulund, ásamt því að hafa góða þekkingu á íslenskum vinnumarkaði, kjara- og réttindamálum og kjarabaráttu.
Kjara- og réttindasvið fæst m.a. við ráðgjöf og rannsóknir á sviði kjaramála auk kjarasamningsgerðar við stofnanir sem hjúkrunarfræðingar starfa við.
Um er að ræða 100% starf en einnig kemur til greina að ráða í 80% starfshlutfall.
Starfs- og ábyrgðarsvið
· Þjónusta við félagsmenn
· Greining og úrvinnsla tölulegra gagna
· Þátttaka í kjarasamningsgerð
· Vinna innan samstarfsnefnda
· Umsjón með endurnýjun stofnanasamninga
· Frétta-, greina-, og skýrsluskrif, kynningarmál og fræðsla
· Þátttaka í öðrum verkefnum félagsins
Menntun, reynsla og hæfni
· Háskólamenntun sem nýtist vel í starfi
· Talnagleggni og mjög góð greiningarhæfni
· Reynsla af kjarasamningagerð æskileg
· Þekking á samningatækni æskileg
· Leiðtogahæfileikar
· Metnaður, frumkvæði og skipulagshæfni
· Jákvætt viðmót og góð samskiptafærni
· Áhugi á og færni í teymisvinnu
· Færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Upplýsingar veitir:
Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, í síma 540-6400 eða gudbjorg@hjukrun.is.
Umsóknarfrestur er til 16. október 2022. Umsóknum skal skila rafrænt á umsokn@hjukrun.is ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.