30.
desember2022
Bilun kom upp á vef Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem varð þess valdandi að um tíma var ekki hægt að skrá sig inn á Mínar síður. Búið er að lagfæra vefinn og verður fylgst með honum í dag.
Vegna bilunarinnar verða umsóknarfrestir sem renna út um áramótin framlengdir til miðvikudagsins 4. janúar 2023.