1.
febrúar 2023
Stjórn Vísindasjóðs auglýsir eftir umsóknum úr B-hluta sjóðsins. Umsóknir skulu berast rafrænt á þar til gerðu eyðublaði ásamt fylgiskjölum á netfangið visindasjodur@hjukrun.is fyrir miðnætti 15. mars 2023.
Markmið sjóðsins er að stuðla að aukinni fræðimennsku í hjúkrun með því að styrkja rannsóknir og fræðiskrif hjúkrunarfræðinga. Aðild að sjóðnum eiga allir þeir hjúkrunarfræðingar sem eru félagsmenn í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og launagreiðendur hafa greitt fyrir í Vísindasjóð á árinu 2022.
Umsóknareyðublað, leiðbeiningarmyndband og nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Vísindasjóðs.