14.
febrúar 2023
Greitt verður úr A-hluta vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga fyrir lok febrúarmánaðar en honum er ætlað að styrkja endur- og símenntun sjóðsfélaga. Ekki þarf að sækja um úthlutun úr sjóðnum heldur er styrkurinn veittur þeim sjóðfélögum sem vinnuveitandi hefur greitt inn í sjóðinn.
Forsendur fyrir greiðslu úr sjóðnum eru réttar persónu- og bankaupplýsingar. Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að fara inn á Mínar síður og tryggja að allar upplýsingar séu réttar svo hægt verði að greiða þeim úr sjóðnum.
Nánar um vísindasjóði