Hjukrun.is-print-version

Kjarasamningur við Reykjavíkurborg samþykktur

RSSfréttir
19. apríl 2023

Atkvæðagreiðsla vegna kjarasamnings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) við Reykjavíkurborg fór fram dagana 14. apríl kl. 10:00 til 19. apríl kl. 12:00. Á kjörskrá voru 97, eða þeir hjúkrunarfræðingar sem fengið höfðu laun skv. kjarasamningi félagsins við Reykjavíkurborg. Alls tóku 74,2% þátt í atkvæðagreiðslunni.

Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já sögðu 65,2%
Nei sögðu 30,6%
4,2%, tóku ekki afstöðu.

Kjarasamningur undirritaður þann 4. apríl 2023 hefur því verið samþykktur af atkvæðabærum félagsmönnum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og tekur því nýr samningur gildi frá 1. apríl 2023 og gildir til 31. mars 2024.

Kjarasamningur Fíh og Reykjavíkurborgar 2023


Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála