24.
apríl 2023
Atkvæðagreiðsla vegna kjarasamnings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) við ríkið fór fram dagana 15. apríl kl. 12:00 til 24. apríl kl. 12:00. Á kjörskrá voru 2.619, eða þeir hjúkrunarfræðingar sem fengið höfðu laun skv. kjarasamningi félagsins við ríkið. Alls tóku 71,6% þátt í atkvæðagreiðslunni.
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já sögðu 49,25%
Nei sögðu 49,15%
1,6%, tóku ekki afstöðu.
Kjarasamningur undirritaður þann 12. apríl 2023 hefur því verið samþykktur af atkvæðabærum félagsmönnum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og tekur því nýr samningur gildi frá 1. apríl 2023 og gildir til 31. mars 2024.