Hjukrun.is-print-version

Kófsveittur á gjörgæslunni

RSSfréttir
5. maí 2023

Jóhannes Kr. með  Sóleyju Halldórsdóttur og Dill Viejo hjúkrunarfræðingum á gjörgæsludeild LSH Fossvogi.

Jóhannes Kr. Kristjánsson, fjölmiðlamaður og framleiðandi Storms, heimildaþáttaraðar um Covid á Íslandi, skrifar um heimsókn á gjörgæsludeild LSH í Fossvogi.

 

Ég var bæði spenntur og stressaður þegar ég steig inn á gjörgæsludeildina í Fossvogi til að fylgjast með og mynda Sóleyju Halldórsdóttur, hjúkrunarfræðing á gjörgæslunni, sinna Covid-sjúklingi sem var alvarlega veikur í öndunarvél.

„Hérna förum við í hlífðargalla. Ég myndi ekki vera í bolnum innan undir skyrtunni,“ sagði Sóley þegar hún hjálpaði mér að klæða mig í gallann. „Eitt mikilvægt atriði – ég skal klippa gat hérna á ermina svo þú getir stungið þumlinum í gegn og haldið erminni fastri,“ sagði hún og yfir ermina fóru tveir hanskar.

Mér hitnaði um leið og ég var kominn í búninginn og kominn inn á sýkta svæðið á deildinni. Ég þakkaði Sóleyju í huganum fyrir ráðið um að vera ekki í bolnum innan undir skyrtunni sem varð rennblaut af svita eftir nokkrar mínútur.

Það eina sem ég gerði var að halda á kamerunni, sem hafði fylgt mér frá byrjun faraldursins, og hún getur seint talist þung en í búningnum varð allt erfiðara og svitinn streymdi út. Ég fann fljótlega fyrir þorsta og fór að hugsa hvenær Sóley færi í pásu, ég þurfti að komast út.

Vesen og hjúkrunarfræðingar

Ég og Sævar Guðmundsson leikstjóri hófum tökur á heimildaþáttaröðinni Stormur í marsmánuði 2020 og strax í upphafi sáum við hvað hjúkrunarfræðingar voru mikilvægir og komu víða við sögu í Covid-faraldrinum.

Þríeykið á bakvið Storm. Jóhannes Kr. Kristjánsson framleiðandi, Heimir Bjarnason klippari og Sævar Guðmundsson leikstjóri.

Það voru hjúkrunarfræðingar í smitrakningarteymunum sem hlúðu að fólkinu í gegnum síma sem hafði verið tilkynnt að væri smitað. Það voru hjúkrunarfræðingar sem stóðu vaktina við sýnatökur og það voru hjúkrunarfræðingar sem blönduðu bóluefnin í sprauturnar sem síðan aðrir hjúkrunarfræðingar tóku við og bólusettu landsmenn með.

Ef það var vesen vegna Covid þá voru hjúkrunarfræðingar í teyminu sem sett var saman til að leysa vandamálið sama hversu stór, flókin eða smá þau vandamál voru.

Stutt kaffipása

Fyrsta vakt Sóleyjar á sýkta svæðinu á gjörgæslunni voru tveir klukkutímar. Sóley hafði allan þann tíma sinnt Covid-sjúklingnum ásamt Dill Viejo, hjúkrunarfræðingi á deildinni. Sjúklingnum fór versnandi og læknar og hjúkrunarfræðingar fóru að velta þeim möguleika upp að snúa honum á grúfu til að minnka álagið á lungun.

Ég var sjálfur við það að gefast upp vegna hita, svita, þorsta og almennrar þreytu þegar Sóley sagði: „Jæja, nú fáum við kaffipásu.“ Eftir sprittþvott í millirýminu steig ég gegnblautur af svita inn á ósýktu deildina og bara með maska yfir andlitinu dró ég andann djúpt og leið eins og ég væri að stíga inn í heim með súrefni.

Ég var með för í andlitinu eftir grímuna og kláraði hratt heilan Gatorade-brúsa sem Sóley gaf mér á kaffistofunni. Mér var hálfflökurt og hafði ekki lyst á kaffi eða meðlæti. Ég reyndi að ná upp kröftum því ég vissi að kaffipásan yrði ekki löng.

Orð sem björguðu

Þegar ég var 10 ára fékk ég að heimsækja föður minn, sem lá þá á gjörgæsludeildinni við Hringbraut, og var mjög veikur. Ég man bara slitrur úr heimsókninni til pabba. Man að hann var hálfrænulaus að benda mér á tækin sem voru í kringum hann – hann var alltaf að kenna mér. Man hvað ég grét sárt þegar ég þurfti að fara frá honum. Og ég man eftir hjúkrunarfræðingnum sem tók utan um mig þegar ég kom út af stofunni og sagði að hún ætlaði að hugsa vel um pabba á meðan ég væri ekki hjá honum.

Þessi orð og hlýja róuðu mig, ég vissi að pabbi væri í góðum höndum hjá þessari yndislegu konu sem tók mig í sinn faðm á raunastundu. Pabbi lést nokkrum vikum síðar og bara það að vita af hjúkrunarfræðingnum sem sagðist ætla að hugsa vel um pabba hjálpaði mér í sorginni.

Grúfulega

Kaffipásan var stutt og fjölskylda sjúklingsins hafði óskað eftir því að fá að sjá hann í gegnum iPad en þeim hafði þá verið greint frá því að hann væri lífshættulega veikur. Vegna tæknilegra erfiðleika tókst ekki að tengjast iPadnum en það tókst svo síðar um kvöldið. Sjúklingnum var snúið á grúfu í þeirri veiku von að það myndi hjálpa honum í veikindunum.

Ég var heila vakt með Sóleyju á gjörgæslunni og þegar ég gekk út af gjörgæsludeildinni mætti ég ungum lækni sem var að koma á vaktina. Hann spurði hvað ég hefði verið að gera og þegar ég sagði honum að ég hefði verið að fylgja Sóleyju hjúkrunarfræðingi eftir fyrir heimildaþáttaröð um Covid á Íslandi varð hann ánægður og sagði: „Það eru hjúkrunarfræðingar sem bera uppi starfið á þessum Covid-tímum.“

Fannst ég vera að deyja

Ég fór í sturtu áður en ég gekk út af spítalanum og á leiðinni heim fór ég að hugsa um hvernig álagið á gjörgæsludeildinni hefði verið þegar fleiri en tíu sjúklingar með Covid lágu í öndunarvél í fyrstu bylgju faraldursins. Nú voru þrír Covid-sjúklingar á deildinni og mér fannst álagið á allt starfsfólkið mjög mikið og allir á þönum alla vaktina.

Þegar ég kom heim var ég gjörsamlega búinn á líkama og sál. Ég held í alvöru að ég hafi sjaldan verið eins þreyttur og fór því snemma í rúmið um kvöldið, ég þurfti á svefninum að halda. Þrátt fyrir þreytuna gekk mér illa að sofna því ég hélt ég væri að deyja. Mér fannst hjartslátturinn of hraður og ég fékk ímyndaðan verk út í vinstri handlegg. Mér tókst þó að róa mig niður og sofnaði loks og svaf ágætlega.

Allt reynt til að bjarga honum

Sjúklingurinn sem Sóley annaðist lést daginn eftir. Nokkrum mánuðum síðar komst ég í samband við eiginkonu og son mannsins sem búa á Filippseyjum. Þau sögðu mér að þau hefðu verið í góðu sambandi við hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeildinni og reglulega fengið upplýsingar um stöðuna. Þau voru innilega þakklát fyrir að vita að allt hafi verið gert til að reyna að bjarga honum og láta honum líða bærilega í veikindum. Það hafði mikla þýðingu fyrir þau í sorginni.

Símaráðgjöf til Ameríku

Nokkrum dögum eftir heimsóknina á gjörgæsludeildina fékk ég tölvupóst frá íslenskum vini mínum sem býr í Bandaríkjunum. Sonur hans hafði veikst af Covid og leið ekki vel. Vinur minn spurði hvort ég þekkti einhvern lækni á Íslandi sem sonurinn gæti fengið að tala við, svona til að róa hann. Ég sagði vini mínum að sonurinn þyrfti ekki að tala við lækni heldur þyrfti hann að tala við hjúkrunarfræðing sem gæti leiðbeint honum.

Ég hringdi í hjúkrunarfræðing sem starfaði á Covidgöngudeildinni og hún sagði að það væri ekkert mál að leiðbeina syninum, hann mætti hringja í hana. Sem hann gerði og hún gat ráðlagt honum svo honum leið betur og fór rólegri í gegnum veikindin. Það voru nefnilega hjúkrunarfræðingarnir sem báru okkur í gegnum faraldurinn.

 

Miðvikudaginn 10. maí í Smárabíó munu framleiðendur Storms sýna hjúkrunarfræðingum áður óséð myndefni sem tekið var upp við gerð þáttanna.

Í kjölfarið munu þeir svara spurningum hjúkrunarfræðinga og taka þátt í umræðum.

Viðburðurinn hefst kl. 17:00 í Smárabíó, hann verður einnig í streymi.

Smelltu hér til að skrá þig í Smárabíó eða til að fá sendan hlekk á streymi.

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála