26.
janúar 2004
Ályktun stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um samdrátt í þjónustu LSH
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) lýsir þungum áhyggjum af samdrætti í þjónustu og fyrirhuguðum uppsögnum starfsfólks á Landspítala háskólasjúkrahúsi. Rannsóknir hafa sýnt að fagleg þekking og fjöldi sérhæfðra heilbrigðisstarfsmanna hefur bein áhrif á gæði heilbrigðisþjónustu. Lengi hefur skort hjúkrunarfæðinga til starfa á LSH. Fækkun þeirra nú mun því án efa rýra gæði þeirrar hjúkrunarþjónustu sem veitt er á sjúkrahúsinu, og þar með er öryggi sjúklinga stefnt í hættu.
Lokun bráðamóttöku og einstakra deilda leiðir til þess að sjúklingar fá síður þjónustu sérhæfðra hjúkrunarfræðinga. Hætta er á að sérfræðiþekking sem byggst hefur upp á löngum tíma glatist.
Stjórn Fíh hvetur stjórnvöld til að endurskoða fjárveitingar til Landspítala háskólasjúkrahúss og bíða með sparnaðarkröfur þar til nefnd sem nú vinnur að skilgreiningu á hlutverki sjúkrahússins hefur lokið störfum.
Samþykkt á fundi stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 26. janúar 2004.