5.
nóvember 2004
Ályktun Hjúkrunarþings Fíh 5. nóvember 2004 um kostnaðarþátttöku sjúklinga í heilbrigðisþjónustunni
Hjúkrunarþing haldið í Reykjavík 5. nóvember 2004 mótmælir harðlega öllum áætlunum um að auka kostnaðarþátttöku sjúklinga í heilbrigðisþjónustunni frekar en þegar er orðið og hvetur stjórnvöld til að endurskoða núverandi greiðslukerfi. Kostnaðarhlutdeild sjúklinga í heilbrigðisþjónustu hefur stöðugt verið að aukast síðustu ár og er nú svo komið að einstaklingar eru farnir að veigra sér við að sækja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu vegna þess kostnaðar sem af því hlýst fyrir einstaklinginn. Hjúkrunarfræðingar vilja ítreka stefnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga þar sem kveðið er á um að tryggja beri rétt allra þjóðfélagsþegna til viðeigandi heilbrigðisþjónustu og leggja beri sérstaka áherslu á þarfir þeirra einstaklinga sem standa höllum fæti, t.d. þeirra sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður, langvinn veikindi og/eða fötlun.