haldinn 17. október 2005 kl. 13:00
Mættir: Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður, Halla Grétarsdóttir 1.varaformaður,
Dagskrá:
- Fundargerðir stjórnarfunda 3.október og 12. september og vinnufundar 12. september 2005 samþykktar með breytingum.
- Starfsreglur stjórnar Fíh
Frestað til næsta fundar.
- Endurskoðun á tilleggi orlofssjóðs til skrifstofu félagsins
Endurskoða þarf framlag sjóðsins til Fíh en í janúar á þessu ári samþykkti stjórn að framlag orlofsnefndar skyldi vera 3,5% af tekjum sjóðsins í stað 25%, eins og verið hafði.
Elsu falið að endurskoða framlagið í samvinnu við orlofsnefnd.
- Námsleyfi fjármálastjóra 2006
Samþykkt að fjármálstjóri fái 50% námsleyfi janúar-maí 2006.
- Starfsmannastefna Fíh.
Frestað til næsta fundar.
- Endurskoðun starfsreglna fagdeilda félagsins
Ákveðið að endurskoða starfsreglur fagdeilda í samvinnu við þær.
- Könnun félagsvísindastofnunar
Frestað.
- Fjárhagsstaða starfsmenntunarsjóðs
Vegna slæmrar fjárhagsstöðu starfsmenntunarsjóðs verður ekki hægt að úthluta styrkjum til þeirra sem sóttu um styrk í sjóðinn fyrir 1.október, að öllu óbreyttu. Stjórn sjóðsins vinnur að breytingum á reglum og verða tillögurnar kynntar stjórn félagsins.
Rætt um að félagssjóður greiði upp skuldbindingar starfsmenntunarsjóðs vegna októberúthlutunar. Stjórn lýsir sig viljuga til þess.
- Önnur mál
- Elsa fundaði með ritnefnd og mun ritnefnd vinna starfsreglur fyrir nefndina og skipuleggja samræðuþingið sem vera á í næsta mánuði.
- Kjarasamningar við Reykjavíkurborg voru feldir. Búið er að funda með hjúkrunarfræðingum sem hlut eiga að máli.
- SSN. Haustfundur og ráðstefna SSN haustið 2007 verður haldin hér á landi.
- ENDA. Stjórn fagdeildar hjúkrunarstjórnenda hefur óskað eftir stuðningi við ENDA fund hér á landi haustið 2007. Fundinum er ætlað að standa undir sér en óskað er eftir því að félagið yrði fjárhagslegur bakhjarl ef illa færi. Stjórn samþykkti þessa málaleitan fagdeildar hjúkrunarstjórnenda.
- Stjórnarfundir fyrri hluta ársins 2006 voru ákveðnir eftirfarandi: 9. og 23.janúar, 6. og 20.febrúar, félagsráðsfundur 17. febrúar, 6. og 20. mars, 3. og 24. apríl, 8. og 22. maí, 12. og 26. júní og 10. júlí.
- Næsti stjórnarfundur verður haldinn 31. október kl. 8:30.
- Ráðning alþjóðafulltrúa eða hjúkrunarfræðings á skrifstofu. Ákveðið að auglýsa eftir hjúkrunarfræðing í 50% starf hjúkrunarfræðings. Æskilegt er að viðkomandi hafi meistarapróf.
- Ingibjörg og Fríða Björg viku af fundi 15:10.
- Trúnaðarmannakerfi á LSH. Engin aðaltrúnaðarmaður er á LSH núna þar sem enginn trúnaðarmaður vildi taka við af fráfarandi aðaltrúnaðarmanni. Trúnaðarmannanámskeið veða haldin í október. Yfir 40 nýir trúnaðarmenn eru að hefja störf um þessar mundir. Endurskoða þarf uppbyggingu trúnaðarmannakerfisins.
- Félaginu barst þakkarbréf frá Kristínu Björnsdóttur vegna styrkjar er hún hlaut við útgáfu bókar sinnar Líkami og sál: Hugmyndir, þekking og aðferðir í hjúkrun..
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:25
Aðalbjörg J. Finnbogadóttir
Samþykkt.