Hjukrun.is-print-version

39. fundur stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 2005 - 2007

RSSfréttir
2. apríl 2007

Haldinn að Suðurlandsbraut 22 þann 2. apríl 2007 kl.13.30

Mættir: Elsa B, Friðfinnsdóttir formaður, Elín Ýrr Halldórsdóttir 2.varaformaður, Jón Aðalbjörn Jónsson  ritari, Ingibjörg Sigmundsdóttir meðstjórnandi,  Hrund Helgadóttir meðstjórnandi

Til afgreiðslu:

  1. Fundargerð síðasta fundar.
    Samþykkt
  2. Ársreikningur félagsins fyrir 2006
    Endurskoðendur og fjármálastjóri komu á fundinn og gerðu grein fyrir ársreikningum og skýringum.
    Stjórn samþykkir reikninginn og stjórnarmenn lýsa ánægju sinni með vinnu fjármálastjóra sem og endurskoðenda félagsins.
  3. Styrkbeiðni frá siða- og sáttanefnd.
    Samþykkt að verða við 1 lið erindisins. Styrkur verður veittur fyrir fargjaldi fyrir 1 fulltrúa á samstarfsfund norrænu siðanefndanna auk dagpeninga til 2 daga.
  4. Styrkbeiðni frá undirbúningshóp ENDA ráðstefnunnar.
    Afgreiðslu til erindis frestað. Frekari upplýsinga um fjölda og kostnað óskað
  5. Þóknanir til fulltrúa í nefndum og stjórnum sjóða Fíh.
    Samþykkt
  6. Tillaga um úrsögn Fíh úr BHM – kynningarfundur.
    Formaður fer yfir niðurstöðu starfshóps um aðild að BHM.  Samþykkt að málið verði kynnt í Tímariti hjúkrunarfræðinga og að haldinn verði kynningafundur um aðild að BHM og áhrif mögulegrar úrsagnar að kvöldi 25. apríl 200 kl. 20:00.

Til umræðu:

  1. Kaup á Go-Pro skjalastjórnunarkerfi.
    Formaður viðrar málið. Sérfræðingur um efnið verður kallaður til síðar til að kynna málið frekar fyrir stjórn.
  2. Kynning á mannekluskýrslu – blaðamannafundur 2. apríl kl. 16:30.
    Skýrslan lögð fram fyrir stjórn.
  3. Greiðendur lægstu félagsgjalda til Fíh. Formaður fer yfir niðurstöðu gjaldkera og fjármálastjóra skoðun á gjöldum þessara aðila

Til kynningar:

  1. Skýrsla kjörnefndar – framboð í stjórn og nefndir.
  2. Svar HTR við erindi vegna kvörtunar um kynbundið áreiti.
  3. Kjararáðstefna BHM 21. maí 2007.
  4. Frestun á málþingi um menntunarmál.
  5. Önnur mál.
    Engin önnur mál eru á dagskrá fundarins.

Fundi slitið kl 15.25

Fundargerð ritaði Jón Aðalbjörn Jónsson ritari stjórnar.

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála