Ályktun fulltrúaþings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 7. og 8. maí 2007 um hjúkrunarrými og mönnun
8.
maí 2007
Fulltrúaþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga fagnar áformum stjórnvalda um fjölgun hjúkrunarrýma fyrir aldraða um 375 rými á næstu árum. Þingið vekur jafnframt athygli á þeirri augljósu staðreynd að fjölgun hjúkrunarrýma kallar á fjölgun hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða. Þingið skorar því á heilbrigðisráðherra að beita sér fyrir því að skilgreina betur en nú er þá hjúkrunarþjónustu sem veita skal á hjúkrunarheimilum og hinir öldruðu eiga rétt á. Fagleg sjónarmið verði lögð til grundvallar í þeirri vinnu.