Hjukrun.is-print-version

1. fundur stjórnar starfstímabilið 2007 - 2009

RSSfréttir
22. maí 2007

Haldinn að Suðurlandsbraut 22. 21. maí 2007 kl. 14:20

Mættir: Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður, Halla Grétarsdóttir 1. varaformaður, Jón Aðalbjörn Jónsson ritar, Eygló Ingadóttir gjaldkeri. Cecilie Björgvinsdóttir meðstjórnandi og Hrund Helgadóttir meðstjórnandi.

Til afgreiðslu:

1.      Auglýsing starfs alþjóðafulltrúa Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Formaður gerir grein fyrir stöðu málsins.
Samþykkt að auglýsa starf alþjóðafulltrúa 50% en að auki 30% starf sama aðila í starf hjúkrunarfræðings í faglegum málefnum.  Starfið er auglýst til eins árs.

2.      Fundir stjórnar til ársloka 2007.
Samþykkt að halda áfram stjórnarfundi á mánudögum kl 13.30-15.30
Fundir ákveðnir:

4. júní 2007
25. júní 2007
30. júlí 2007
13. ágúst 2007
27.
ágúst 2007
10. september 2007 vinnufundur stjórnar
21. september 2007 Félagsráðsfundur
24. september. 2007
27. september 2007 aukaaðalfundur Fíh
8. október 2007
22. október 2007
23. október 2007 stjórnarfundur SSN
24. – 25. Október 2007 kjararáðstefna SSN
5. nóvember 2007
19. nóvember 2007
10. desember jólafundur


Til umræðu:

3.      Starfsáætlun stjórnar Fíh samþykkt á fulltrúaþingi félagsins 7.-8. maí 2007.
Leiðréttingar á gögnum til stjórnarmanna.

4.      Fjárhagsáætlun Fíh samþykkt á fulltrúaþingi félagsins 7.-8. maí 2007.
Leiðréttingar á gögnum til stjórnarmanna.

5.      Rekstraryfirlit janúar til apríl 2007 og áætlun 2007.
Formaður gerir grein fyrir yfirliti frá fjármálastjóra

6.      Undirbúningur að skipan vinnuhóps um endurskoðun á lögum og uppbyggingu félagsins.
Formaður greinir frá 5 aðilum sem hafa gefið kost á sér í nefndina.  Nauðsynlegt er að gefa öllum hjúkrunarfræðingum að koma að þessu starfi. 
Samþykkt að auglýsa eftir þeim sem kynnu að hafa áhuga á þátttöku í þessu starfi á vefsvæði Fíh og í Tímariti hjúkrunarfræðinga.

7.      Aðild Fíh að BHM.
Formaður skýrir frá fundi í miðstjórn BHM þar sem hún gerði miðstjórn grein fyrir niðurstöðum fulltrúaþings Fíh 2007.
Næsti miðstjórnarfundur BHM er boðaður 6. júní þar sem teknar verður til umræðu hugmyndir aðildarfélaga ásamt tillögu Fíh um aukaaðalfund BHM.
Umræða um stöðu málsins.

8.      Samantekt vinnuhóps um nurse-patient-ratio.
Farið yfir samantektina.  Umræður um það hvernig vinna hópsins nýtist.
Samþykkt að formaður sendi nefndinni erindi um dagsetningu lokaskýrslu nefndarinnar sem og efnistök hennar.

9.      Önnur mál.

-         Erindi frá Stígamótum
Formaður kynnir erindið.  Erindinu hafnað.

-         Erindi um fjölskylduráðstefnu
Samþykkt að leita eftir tilnefningum frá fagdeildum barna- og heilsugæsluhjúkrunarfræðinga.

-         Upplýsingar um dómsmál.
Elsa gerir grein fyrir aðalmeðferð dómsmáls vegna félagsmanns gegn LSH.

-         Vísindasjóður B hluti.
Móttaka vegna afhendinga styrkja úr B-hluta vísindasjóðs verður. 31. maí kl. 12.00

-         Húsnæðismál
Formaður kynnir hugmyndir um hugsanlega skoðun á endurnýjun húsnæðis félagsins.
Samþykkt frekari skoðun á málinu.

Fundi slitið kl 16.00
Fundargerð ritaði Jón Aðalbjörn Jónsson, ritari stjórnar.

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála