25.
ágúst 2008
25. ágúst 2008 kl 13:30
Fundinn sátu:
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður, Halla Grétarsdóttir 1. varaformaður, Stefanía B. Arnardóttir, varamaður, Elín Ýrr Halldórsdóttir 2. varaformaður, Hólmfríður Kristjánsdóttir, meðstjórnandi og Gyða Ölvisdóttir, varamaður.
Til afgreiðslu:
- Fundargerðir 21. og 22. fundar samþykktar.
- Fundaplan haustmisseris 2008 samþykkt, en Elsa ætlar þó að athuga dagsetningu vegna félagsráðsfundar.
- Rædd var greinargerð um markvissa nýtingu á þekkingu og starfskröftum sjúkraliða. Ákveðið var að Aðalbjörgu Finnbogadóttur verði falið að afla upplýsinga um mönnun á hjúkrunarheimilum og stjórn sendi inn greinargerð eftir að frekari upplýsingar liggja fyrir.
Til umræðu:
- Kjarasamningar Fíh eru í þessum áfanga að komast í höfn. Fyrirhugað er að skrifa undir í dag samning við samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu en þau hafa samþykkt að gildistími verði frá 1. júlí. Það sama á við um Krabbameinsfélagið og Eir og Skjól. Einnig er unnið að rammasamningi við TR. Vinna við endurskoðun stofnanasamnings á LSH er í burðarliðnum.
- Kjaradeila ljósmæðra rædd og samþykkt var ályktun frá stjórn varðandi undirtektir við kröfur LMFÍ um aukið verðmat á háskólanámi og einnig minnt á fyrirheit í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar um jafnrétti til launa.
Til kynningar:
- Önnur mál
- Elín Ýrr sagði frá söfnun Mænuskaðastofnunar Íslands sem halda á 19. september á stöð 2. Fyrirhugað er að vinna að gagnagrunni þar sem upplýsingar eru aðgengilegar á einum stað. Tekið var vel í málið af stjórn og ákveðið að vísa því til verkefnastjóra Ímyndunarverkefnis um hvernig hægt er að styðja við málið.
- Stefanía gerði fyrirspurn um hvernig uppbyggingu, fræðslu og eflingu verði háttað varðandi fagdeildir við fyrirhugaða breytingu á lögum félagsins. Rætt var um að þörf væri á áframhaldandi umræðu um málið og koma upplýsingum til félagsmanna.
- Samþykkt var að næst þegar boðað væri til stjórnarfundar yrðu gögn send út rafrænt.
Fundi slitið kl. 15:30
Gyða Ölvisdóttir, fundarritari.