Hjukrun.is-print-version

Ályktun Hjúkrunarþings 2008 um að standa vörð um heilbrigðiskerfið

RSSfréttir
6. nóvember 2008


Reykjavík 10. nóvember 2008




Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðismálaráðherra
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 
Vegmúla 3
150 Reykjavík




Ályktun frá hjúkrunarþingi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldið 6.-7. nóvember 2008


Hjúkrunarþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er haldið annað hvert ár og þar er fjallað um stefnu félagsins í faglegum málefnum hjúkrunar. Í ár fólst vinna þingsins aðallega í því að endurskoða stefnu félagsins í hjúkrunar- og heilbrigðismálum í tengslum við breytt lagaumhverfi og ný tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga. 


Á þinginu var samþykkt eftirfarandi ályktun.


Hjúkrunarþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldið 6. og 7. nóvember 2008 hvetur stjórnvöld til að standa sérstakan vörð um heilbrigðiskerfið við þær samfélagsaðstæður sem nú eru uppi. Heilbrigðiskerfið hefur á að skipa miklum mannauði vel menntaðra hjúkrunarfræðinga sem að sjálfsögðu lýsa sig reiðubúna til virkrar þátttöku í því að tryggja áframhaldandi heilbrigði og velferð landsmanna nú þegar mest á reynir.






F.h. stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga




____________________________
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga






Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála