9.
desember2008
Reykjavík 9. desember 2008
Ályktun stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga til stjórnvalda:
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hvetur stjórnvöld til að standa sérstakan vörð um og vernda núverandi heilbrigðiskerfi við þær samfélagsaðstæður sem þjóðin tekst á við um þessar mundir. Ljóst er að fjöldi landsmanna mun verða fyrir atvinnumissi og verulegu fjárhagstjóni. Slíkt hefur áhrif á heilsu fólks. Stjórn Fíh leggur því áherslu á að framlög til heilbrigðismála verði ekki skert, til að áfram verði hægt að mæta núverandi þörf landsmanna fyrir heilbrigðisþjónustu ásamt þeirri auknu þörf sem líklega skapast.
Stjórn Fíh varar jafnframt við því að kröfur um faglega þjónustu sérhæfðra heilbrigðisstarfsmanna og öryggi sjúklinga verði skertar. Slíkt leiðir aðeins til aukinna vandamála einstaklinganna og meiri kostnaðar þegar upp er staðið. Stjórn Fíh minnir á að heilbrigðiskerfið hefur á að skipa miklum mannauði vel menntaðra hjúkrunarfræðinga sem að sjálfsögðu lýsa sig reiðubúna til virkrar þátttöku í því að tryggja áframhaldandi heilbrigði og velferð landsmanna, nú þegar mest á reynir.
F.h. stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður
s. 540-6400 og 861-2892