30.
janúar 2009
Reykjavík 30. janúar 2009
Ályktun stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga:
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga varar við afleiðingum þeirra sparnaðaraðgerða sem boðaðar hafa verið hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Öflugt starf hefur byggst upp á þremur heilsuverndarsviðum en það eru miðstöð heilsuverndar barna, miðstöð mæðraverndar og miðstöð tannverndar. Sérþekking heilbrigðisstarfsmanna á snemmgreiningu og meðferðum hefur lagt grunn að heilbrigði barna og fjölskyldna í landinu og er sú þekking til að mynda einn af lykilþáttum þess að draga úr heilsupillandi áhrifum þeirra aðstæðna sem íslenskt samfélag býr við í dag. Hætta er á að boðaður niðurskurður muni draga úr gæðum forvarnarstarfs heilsugæslunnar sem mun auka kostnað á öðrum sviðum heilbrigðiskerfisins þegar fram líða stundir.
F.h. stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður