Reykjavík 10. desember 2010
Nefndasvið Alþingis
Austurstræti 8 - 10
150 Reykjavík
Efni: Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna og lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, 301. mál.
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) þakkar fyrir að fá tækifæri til að veita umsögn um ofangreint frumvarp.
Stjórnin leggur áherslu á að breyting á lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna verði í þessu tilfelli gerð með sama hætti og gert var 1989 og 1990, þegar verkefni heilbrigðisstofnana voru flutt frá sveitarfélögunum til ríkisins. Breytingin þá var efnislega á þann veg að félagsmenn viðkomandi bæjastarfsmannafélaga gátu valið hvort þeir væru áfram í viðkomandi félagi, eða flyttu sig yfir í samsvarandi félög ríkisstarfsmanna. Hið sama gilti um nýja starfsmenn þ.e. þeir höfðu einnig val um félagsaðild.
Stjórn Fíh gerir ekki aðrar athugasemdir við frumvarp þetta.
Virðingarfyllst,
F.h. stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga,
________________________________________
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður