Hjukrun.is-print-version

Ályktun stjórnar Fíh um breytingar á vaktafyrirkomulagi á skurðstofum LSH

RSSfréttir
6. desember2011
Reykjavík 21. apríl 2008



Áskorun stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga til stjórnenda Landspítala:

Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) skorar á stjórnendur Landspítala að fresta nú þegar fyrirhuguðum breytingum á vaktafyrirkomulagi hjúkrunarfræðinga á skurð- og svæfingadeildum spítalans og afstýra þannig því neyðarástandi sem skapast ef stærstur hluti skurð- og svæfingahjúkrunarfræðinga lætur af störfum um næstu mánaðarmót. Jafnframt skorar stjórn Fíh á stjórnendur Landspítala að leita samstarfs við hjúkrunarfræðingana um mögulegar breytingar á vaktafyrirkomulaginu þannig að starfsfriður skapist til framtíðar og öryggi sjúklinga verði áfram tryggt.
Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála