Hjukrun.is-print-version

Umsögn um frumvarp til laga um sjúkratryggingar og lyfjalög

RSSfréttir
18. maí 2015
Reykjavík 18. maí 2015
Velferðarnefnd Alþingis
nefndarsvid@althingi.is

Umsögn um frumvarp til laga um sjúkratryggingar og lyfjalög (heilbrigðisþjónusta yfir landamæri, EES-reglur), 636. mál.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) vill ítreka fyrri athugasemd sem send var Velferðarráðuneytinu 20. febrúar 2015, en þar var gerð athugasemd við 6. gr. frumvarps til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, og lyfjalögum nr. 93/1994, með síðari breytingum. Þessi athugasemd gildir nú við 9. grein frumvarps til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, og lyfjalögum nr. 93/1994, með síðari breytingum EES-reglur).

Þar er lagt til að í stað orðanna „hér á land“ í 2. mgr. 11. gr. laganna komi: innan Evrópska efnahagssvæðisins.

Í rökstuðningnum um 9. gr. segir „Með breytingunni verður lyfseðill ekki lengur einungis gild lyfjaávísun læknis, tannlæknis eða dýralæknis sem hafa gild lækningaleyfi hér á landi, heldur munu lyfseðlar gefnir út af læknum, tannlæknum eða dýralæknum með gild lækningaleyfi í aðildarríkjum EES vera gildar lyfjaávísanir hér á landi, þó í samræmi við þær reglur sem gilda um ávísanir og afhendingu lyfja.

Fíh minnir á að í sumum löndum Evrópu hafa hjúkrunarfræðingar leyfi til að ávísa lyfjum og því er nauðsynlegt að aðlaga 9. gr. að þeirri staðreynd þannig að lyfseðlar sem gefnir eru út af hjúkrunarfræðingum með gild hjúkrunarleyfi í aðildarríkjum ESB og EES gildi einnig milli landa.

Þá vill Fíh benda á að í Directive 2012/52/EU er ekki eingöngu talað um lækna heldur er þar talað um heilbrigðisstarfsfólk í tengslum við útgáfu lyfseðla og eru þar notuð ensku orðin health professional og prescribing health professional.

Fíh gerir eftirfarandi breytingartillögu við 9. grein:
Lyfseðill er lyfjaávísun læknis, tannlæknis og dýralæknis sem hefur gilt lækningaleyfi og annarra heilbrigðisstarfsmanna sem hafa gilt leyfi til að ávísa lyfjum innan Evrópska efnahagssvæðisins. Í neyðartilfellum er lyfjafræðingum heimilt að afhenda lyf í minnstu pakkningu án lyfseðils.

Virðingafyllst

Ólafur G. Skúlason, formaður
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála