Hjukrun.is-print-version

Ályktun málþings um stöðu súrefnisþega á Íslandi

RSSfréttir
17. maí 2017

Málþingið var haldið á Grand hóteli við Sigtún, 17. Maí 2017.

Fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga, Félag íslenskra lungnalækna og Samtök lungnasjúklinga hafa samþykkt svohljóðandi ályktun:

  • Brýn þörf er á að efla þjónustu við súrefnisþega á Íslandi
  • Tryggja þarf hentugasta búnað fyrir alla súrefnisþega
    -  Auka þarf og efla fræðslu um súrefnismeðferð, eftirlit með líðan og súrefnismeðferð sjúklinga
    -  Gefin verði út skýr skilgreining á réttindum súrefnisþega út frá þörf þeirra fyrir súrefnismeðferð með viðeigandi búnaði
  • Gefnar verði út klínískar leiðbeiningar fyrir fagfólk um súrefnismeðferð í heimahúsi og við athafnir daglegs lífs
  • Endurnýjaður verði samningur milli Landspítala og Sjúkratrygginga Íslands um súrefnismeðferð fyrir súrefnisháða
  • einstaklinga utan sjúkrahúsa
Skorað er á stjórnvöld að bregðast við þessum vanda svo fljótt sem auðið er.
Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála