Reykjavík 9. mars 2018
Velferðarnefnd Alþingis
Efni: Umsögn um tillögu til þingsályktunar um greiðsluþátttöku sjúklinga.
148. Löggjafarþing 2017-2018
Þingskjal 44 - 44. mál.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) tekur undir með flutningsmönnum tillögunnar að hámarksgreiðslur sjúkratryggðra fyrir utan heilsugæslu skuli vera 35.000.- á ári svo og að draga úr hlutdeild aldraðra og öryrkja í kostnaði við tannlækningar.
Fíh vill ítreka fyrri umsagnir sínar við tillögu til þingsályktunar um greiðsluþátttöku sjúklinga, þingskjal 106, 49. mál dagsettri 23. febrúar 2017 og 2. maí 2016, um drög að frumvarpi til laga um sjúkratryggingar (hámarksgreiðslur sjúkratryggðra og þjónustustýring) 676. mál.
Þar kom fram að Fíh telur að hámarkskostnaður sjúklinga við heilbrigðisþjónustu á ári sé of hár og ekki eigi að lækka hámarksgreiðslur sjúkratryggðra með því að færa til kostnað innan kerfisins milli sjúklingahópa í stað þess að bæta fjármunum inn í kerfið.
Gjaldfrjálsa þjónustu heilsugæslu fyrir börn, öryrkja og aldraða/lífeyrisþega telur Fíh mikilvægt skref í þjónustustýringu í heilbrigðiskerfinu, þ.e. að gera heilsugæsluna að fyrsta viðkomustað í heilbrigðisþjónustunni.
Þá hefur Fíh bent á að til að heilsugæslan geti sinnt hlutverki sínu þarf að efla þjónustu hennar til mikilla muna. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins ræður t.d. illa við þá þjónustu sem hún á að veita. Skýrist það m.a. af skorti á fjármagni og starfsfólki og innra skipulagi. Í því sambandi telur Fíh mikilvægt að fjölga heilbrigðisstéttum innan heilsugæslunnar sem og að nýta betur þekkingu þeirra stétta sem þar starfa, þar á meðal hjúkrunarfræðinga.
Virðingafyllst,
Guðbjörg Pálsdóttir formaður
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga