„Ég veit ekki hvað það er að líða vel“
Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, geðheilsustöð Breiðholts
Sigrún Sigurðardóttir, heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri
Sigríður Halldórsdóttir, heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri
Bakgrunnur rannsóknar: Rannsóknarniðurstöður benda til þess að meðferðaraðilar taki sjaldan eftir að um endurtekin áföll vegna ofbeldis er að ræða hjá konum með geðröskun. Þær fái því ekki viðeigandi meðferð, til dæmis tækifæri til tilfinningatjáningar og tilfinningaúrvinnslu, við áföllunum.
Tilgangur rannsóknarinnar var að auka þekkingu og dýpka skilning á áhrifum áfalla vegna endurtekins ofbeldis í bernsku og á fullorðinsárum á líðan, líkamsheilsu og geðheilbrigði kvenna sem greindar hafa verið með geðröskun.
Aðferð: Í þessari fyrirbærafræðilegu rannsókn voru þátttakendur átta konur á aldrinum 35-55 ára. Tekin voru tvö viðtöl við allar konurnar nema eina, samtals 15 viðtöl. Allar konurnar voru greindar með þunglyndi og kvíða og sumar þeirra voru einnig með
annars konar geðröskun.
Niðurstöður: Konurnar urðu margsinnis fyrir ofbeldi í bernsku og á unglingsaldri sem leiddi iðulega til sálrænna áfalla. Ofbeldið, sem þær urðu fyrir, var ýmist líkamlegt ofbeldi, andlegt ofbeldi, vanræksla eða kynferðislegt ofbeldi. Þær urðu einnig margoft fyrir ofbeldi á fullorðinsaldri svo að sálræn sár þeirra náðu aldrei að gróa. Það leiddi
síðan til tilvistarlegrar þjáningar sem þær sögðu raunar sjaldnast frá. Tengslanet og stuðningur í uppvexti kvennanna var af skornum skammti. Þær lýstu flestar umhyggjuleysi og að þeim hefði fundist þær óvelkomnar eða þeim hafnað af fjölskyldunni í barnæsku og á fullorðinsárum. Vegna þessa umhyggju- og stuðningsleysis vantaði sálrænan höggdeyfi gegn niðurbrjótandi áhrifum ofbeldisins. Þetta leiddi til að þær brotnuðu niður og vissu ekki hvað það var að líða vel.
Afleiðing þessa alls var að þær glímdu allar við geðræn vandamál, einkum þunglyndi og kvíða. Konurnar lýstu uppgjöf við að finna út úr því hvað gæti hjálpað þeim til að líða betur. Tilfinning sumra þeirra var að þær gætu varla þolað meiri tilvistarlegan sársauka.
Ályktun: Rannsóknin varpar ljósi á mikilvægi þess að spyrja um áfallasögu vegna endurtekins ofbeldis hjá konum með geðröskun og veita þeim viðeigandi meðferð.
Lykilorð: Ofbeldi, sálræn áföll, konur, fyrirbærafræði, viðtöl.
3.tbl. 2014: "Ég veit ekki hvað það er að líða vel": Reynsla kvenna með geðröskun af áhrifum endurtekins ofbeldis á líðan, líkamsheilsu og geðheilbrigði