Hjukrun.is-print-version

Skortur á hjúkrunarfræðingum nemur hundruðum

RSSfréttir
17. febrúar 2017

Alls vantar 290 hjúkrunarfræðinga til starfa til að manna fjármögnuð stöðugildi hjúkrunarfræðinga á heilbrigðisstofnunum á Íslandi. Að mati framkvæmdastjóra hjúkrunar og hjúkrunarforstjóra er áætluð þörf þó meiri, eða 523 hjúkrunarfræðingar að því er fram kemur í nýútkominni skýrslu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um vinnumarkað hjúkrunarfræðinga.

Síðustu áratugi hefur fjöldi kannana um stöðu mönnunar í hjúkrun sýnt að stöðugur skortur er á hjúkrunarfræðingum á Íslandi. Samkvæmt greiningu á vinnumarkaði hjúkrunarfræðinga eru einungis 69% þeirra félagsmenn í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og starfa um þúsund hjúkrunarfræðingar við annað en hjúkrun. Þá er brottfall nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga úr starfi að meðaltali 15% á undanförnum fimm árum. Launamunur á hjúkrunarfræðingum og öðrum stéttum með sambærilega menntun og ábyrgð í starfi hjá hinu opinbera er um 20%. Algengustu byrjunarlaun hjúkrunarfræðinga eru 359 þúsund krónur fyrir fullt starf og meðaltalsdagvinnulaun hjúkrunarfræðinga eru 526 þúsund krónur.

Til að tryggja næga mönnun í hjúkrun og þar með öryggi sjúklinga og að draga úr dánarlíkum þeirra er nauðsynlegt að gripið verði til aðgerða hjá hinu opinbera og öðrum heilbrigðisstofnunum að mati Guðbjargar Pálsdóttur, formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Samkvæmt mannfjöldaspá mun íbúum 60 ára og eldri fjölga umtalsvert á komandi árum og eykur það enn frekar eftirspurn eftir heilbrigðisstarfsfólki.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leggur til að brugðist verði við skorti á hjúkrunarfræðingum með því að veita meira fé til menntunar hjúkrunarfræðinga og hækka laun þeirra til samræmis við aðra opinbera starfmenn. Þá þarf að leita leiða til að draga úr vinnuálagi og bæta starfsumhverfi til þess að sporna gegn skertu starfshlutfalli hjúkrunarfræðinga, en það er að meðaltali 71%, og talið mega rekja til starfsumhverfis, vinnufyrirkomulags, vinnutíma og álags í starfi.

Nýútkomna skýrslu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga má lesa hér.

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála