Hjukrun.is-print-version

Kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka atvinnulífsins uppfærður

RSSfréttir
19. ágúst 2022

Samkomulag hefur verið gert um uppfærslu á kjarasamningi SA og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Breytingarnar varða einkum vinnutímaákvæði sem og uppfærsla á ýmsum réttindaþáttum kjarasamnings. Með breytingunni eru vinnutímaákvæði kjarasamningsins aðlöguð að vinnutímaákvæðum kjarasamninga skrifstofufólks á almennum vinnumarkaði en í framkvæmd hefur dagvinnutími víða verið samræmdur milli þeirra starfsmanna sem starfa eftir kjarasamningi þessum og þeirra sem starfa eftir kjarasamningum skrifstofufólks.

Vinnutímastytting kemur einungis til framkvæmda þar sem virkur vinnutími (sá tími sem starfsmaður er við störf) er lengri en 35,5 stundir að jafnaði á viku. Neysluhlé og önnur hlé frá vinnu vegna ýmiss konar persónulegra erinda teljast ekki til virks vinnutíma í þessu sambandi.

Vinnutímastyttingin á að koma til framkvæmda, þar sem við á, eigi síðar en 1. október nk. Kjarasamningurinn nær til félagsmanna í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum Samtaka atvinnulífsins.

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér kjarasamninginn sem má finna hér: 

Kjarasamningur Fíh og SA

Vegna frekari fyrirspurna er hægt að hafa samband við kjara- og réttindasvið Fíh í gegnum kjarasvid@hjukrun.is.

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála