Nú er langt liðið á aðventuna, jólin nálgast óðfluga og það styttist í nýtt ár. Þetta ár hefur verið viðburðaríkt eins og oft áður og má þar t.d. nefna ráðstefnuna HJÚKRUN 2017 sem haldin var í september síðastliðnum, stofnun landsvæðadeilda, fundi með hjúkrunarfræðingum um land allt og útgáfur
tímamótaskýrslna um geðhjúkrun,
vinnumarkað hjúkrunarfræðinga og
skýrslu Ríkisendurskoðunar um mönnun hjúkrunarfræðinga. Verkefnin eru mörg og ekki dugir alltaf tíminn til. Kannski er það ekki óeðlilegt þegar um er að ræða stærstu heilbrigðisstéttina á landinu, en betur má ef duga skal og munu starfsmenn félagsins leitast við, eins og fyrr, að vinna að málefnum hjúkrunarfræðinga af heilhug og bestu getu.
Fjölbreytt og gefandi starf í erfiðu vinnuumhverfi
Ég vil þakka ykkur fyrir frábæra þátttöku í rafrænni könnun sem framkvæmd var nú í nóvember á meðal félagsmanna. Þátttakan var mjög góð og var svarhlutfallið rúm 72%, en alls tóku 2151 hjúkrunarfræðingur þátt. Niðurstöðurnar ættu þar af leiðandi að gefa góða mynd af viðhorfi hjúkrunarfræðinga til starfsins, ánægju þeirra og líðan í starfi, og öðrum þáttum er viðkoma starfinu, s.s. vinnuumhverfi og aðbúnaði. Verið er að vinna úr niðurstöðunum sem verða kynntar fljótlega á nýju ári. Hægt er þó að veita smá innsýn inn í þær og er t.d. fjölbreytileiki starfsins, það að gera gagn og láta gott af sér leiða, mannleg samskipti og gefandi starf, dæmi um þætti sem þátttakendur töldu jákvæða við að vinna sem hjúkrunarfræðingar. Aftur á móti töldu svarendur laun, vinnuálag og starfsumhverfi neikvæðustu þættina við það að vinna sem hjúkrunarfræðingur. Ég er viss um að niðurstöður þessarar könnunar eiga eftir, ásamt skýrslunni um vinnumarkað hjúkrunarfræðinga og skýrslu Ríkisendurskoðunar, að nýtast okkur vel inn í frekari baráttu fyrir hjúkrunarfræðinga fyrir bættum kjörum og vinnuumhverfi.
Vandinn verður ekki leystur á einni nóttu
Hjúkrunarfræðingar hafa ekki farið varhluta af því hversu mikið er að gera í heilbrigðiskerfinu sem er komið að þolmörkum og því miður eru hjúkrunarfræðingar enn að leita í önnur störf. En nú hefur ný ríkisstjórn tekið við völdum og bind ég vonir við lausnamiðuð úrræði á heilbrigðismálum fyrir hjúkrunarfræðinga og skjólstæðinga þeirra. Ég óska þess að félagsmenn nái að lyfta sér upp úr amstri dagsins yfir jólahátíðina, njóti gleði og friðar með fjölskyldu og vinum, því ástandið í heilbrigðiskerfinu verður ekki leyst á einni nóttu, heldur er það langtímaverkefni. Við megum þó ekki gleyma því að hugsa vel um okkur. Við þurfum að halda vel utan um og hlúa að sjálfum okkur áður en við förum að hjálpa öðrum. Að lokum vil ég óska ykkur gleðilegra jóla og hamingjuríks nýs árs. Megi gæfan fylgja ykkur á nýju ári.