Greinar
Starfsánægja, streita og heilsufar á breytingatímum
Rannsókn á Kragasjúkrahúsunum
Birna G. Flygenring og Herdís Sveinsdóttir
Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar greina frá streitu, starfsánægju, heilsu og vinnu og starfsumhverfi á endurskipulagningar- og niðurskurðartímum í kjölfar efnahagskreppunnar 2008. Einnig var ákveðið að skoða hvort munur er á þessum breytum eftir starfshópunum tveimur og út frá sjálfmetnum áhrifum kreppunnar á starf og einkalíf.Erum við tilbúin þegar á reynir?
Viðbrögð í kjölfar hamfara og stórslysa
Hulda Ringsted og Árún K. Sigurðardóttir
Hjúkrunarfræðingar og læknar gegna mikilvægu hlutverki í kjölfar hamfara og stórslysa en geta þó verið illa undirbúnir til slíkra starfa. Reynslubundin þekking er lítil og tækifæri til náms og þjálfunar því nauðsynleg. Íslenskar rannsóknir um efnið eru fáar ef nokkrar og því er mikilvægt að byggja upp fræðilegan grunn þar sem horft er til íslenskra aðstæðna.„Ég veit ekki hvað það er að líða vel“
Reynsla kvenna með geðröskun af áhrifum endurtekins ofbeldis á líðan, líkamsheilsu og geðheilbrigði
Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, Sigrún Sigurðardóttir og Sigríður Halldórsdóttir
Rannsóknarniðurstöður benda til þess að meðferðaraðilar taki sjaldan eftir að um endurtekin áföll vegna ofbeldis er að ræða hjá konum með geðröskun. Þær fái því ekki viðeigandi meðferð, til dæmis tækifæri til tilfinningatjáningar og tilfinningaúrvinnslu, við áföllunum.Hvernig er fræðsluþörfum aðstandenda gerviliðasjúklinga á Íslandi sinnt?
Árún K. Sigurðardóttir og Brynja Ingadóttir
Aðstandendur gegna mikilvægu hlutverki í bataferli sjúklinga sem fá gerviliði. Með styttri legutíma á sjúkrahúsum er meiri ábyrgð lögð á sjúklinga og aðstandendur hvað varðar umönnun sem heilbrigðisstarfsfólk sinnti áður. Til að sinna þessu hlutverki vel þurfa aðstandendur fræðslu en lítið hefur verið rannsakað hverjar fræðsluþarfir þeirra eru.Samþætting heilbrigðis- og félagsþjónustu
Fræðileg samantekt
Hildur Elísabet Pétursdóttir og Kristín Björnsdóttir
Stefna stjórnvalda er að aldraðir geti búið sem lengst á heimilum sínum með viðeigandi aðstoð. Tilgangur þessarar greinar er að varpa ljósi á það hvernig samþættingu heilbrigðis- og félagsþjónustu fyrir aldraða er best fyrir komið.Vinnutengd streita og starfsumhverfi íslenskrahjúkrunardeildarstjóra
Þórey Agnarsdóttir, Sigríður Halldórsdóttir, Hafdís Skúladóttir og Hjördís Sigursteinsdóttir
Samkvæmt erlendum rannsóknum finna hjúkrunardeildarstjórar fyrir miklu vinnuálagi sem skapað getur vinnutengda streitu. Tilgangur þessarar rannsóknar var í fyrsta lagi að kanna hvort hjúkrunardeildarstjórar á Íslandi hafi einkenni um vinnutengda streitu, í öðru lagi hverju hún tengist og í þriðja lagi hvaða þættir stuðla að því að þeir séu sáttir eða ósáttir við starfsumhverfi sitt.Fylgni við reglur um grundvallarsmitgát og umbætur á sjúkrahúsinu á Akureyri árin 2006 og 2008
Ólína Torfadóttir og Árún Kristín Sigurðardóttir
Grundvallarsmitgát er mikilvæg til að draga úr hættu á sjúkrahústengdum sýkingum, sérstaklega þar sem bakteríur verða sífellt ónæmari fyrir sýklalyfjum. Tilgangur umbótaverkefnisins var að auka fylgni við reglur um grundvallarsmitgát og draga þannig úr dreifingu örvera til sjúklinga og starfsmenn.Viðhorf hjúkrunarfræðinga á íslenskum hjúkrunarheimilum til líknarmeðferðar og þekking fleirra á henni
Heiðdís Harpa Kristjánsdóttir og Elísabet Hjörleifsdóttir
Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna viðhorf hjúkrunarfræðinga á íslenskum hjúkrunarheimilum til líknarmeðferðar og þekkingu þeirra á henni með skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) sem viðmið.Spurningalisti um skjólstæðingsmiðaða þjónustu
Þýðing og staðfærsla með ígrunduðum samtölum
Sólrún Óladóttir og Guðrún Pálmadóttir
Í þessari rannsókn var aðferðin ígrunduð samtöl notuð til að þýða og staðfæra spurningalista til að meta að hvaða marki þjónusta er skjólstæðingsmiðuð.Væntingar til fræðslu og heilsutengd lífsgæði sjúklinga sem fara í gerviliðaaðgerð
Árún K. Sigurðardóttir, Gunnhildur H. Gunnlaugsdóttir og Brynja Ingadóttir
Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvernig væntingum sjúklinga, sem fara í gerviliðaaðgerð á mjöðm og hné, til fræðslu er sinnt á íslenskum sjúkrahúsum og tengslum þess við heilsutengd lífsgæði.