Greinar
Heilbrigðisstarfsfólk hjúkrunardeilda á landsbyggðinni
Viðhorf til stjórnunar og líðan í starfi
Hallfríður Eysteinsdóttir, Hermann Óskarsson og Ragnheiður Harpa Arnardóttir
Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna líðan starfsfólks hjúkrunardeilda meðalstórra heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni og viðhorf þess til stjórnunar. Könnuð voru tengsl starfsánægju, líðanar starfsfólks og stjórnunarlegra þátta og athugað hvort munur væri á landshlutum og ólíkum starfsstéttum.Heilsa og líðan nýraþega á Íslandi
Hildigunnur Friðjónsdóttir, Margrét Birna Andrésdóttir, Hildur Einarsdóttir og Arna Hauksdóttir
Tilgangur: Að kanna líðan, heilsu og lífsgæði nýraígræðslu þega. Stuðningur og upplýsingagjöf til nýraþega voru könnuð sérstaklega og hvort munur væri á líðan nýraþega sem fengu nýra frá lifandi eða látnum gjafa.Könnun á gildum ólíkra tengslagerða í rómantískum samböndum
Dagmar Rósa Guðjónsdóttir og Sóley S. Bender
Grundvallarþáttur mannlegrar tilveru er að mynda við aðra einstaklinga góð sambönd sem byggjast á trausti. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna samband tengslagerða og tengslavídda fullorðinna einstaklinga við sjálfsvirðingu og gæði í rómantískum samböndum, en það hefur ekki áður verið gert á Íslandi. Rannsóknin er hluti af alþjóðlegri rannsókn (International Sexuality Description Project, ISDP).Viðfangsefni hjúkrunarfræðinga á hjúkrunarheimilum - Að hafa alla þræði í hendi sér
Jónbjörg Sigurjónsdóttir, Helga Jónsdóttir, Birna G. Flygenring og Helga Bragadóttir
Tilgangur þessarar eigindlegu rannsóknar var að varpa ljósi á viðfangsefni hjúkrunarfræðinga á hjúkrunarheimilum og lýsa því í hverju störf þeirra eru fólgin. Tekin voru fjögur rýnihópaviðtöl við samtals 22 hjúkrunarfræðinga frá fimm hjúkrunarheimilum. Notaður var hálfstaðlaður viðtalsrammi.Viðbótarvinnuálag á hjúkrunarfræðinga í bráðaþjónustu
Lýsandi rannsókn
Sveinfríður Sigurpálsdóttir, Ragnar F.Ólafsson og Helga Bragadóttir
Störf hjúkrunarfræðinga eru margbreytileg og flókin. Verkefni, sem ekki eru fyrirséð, bætast daglega við venjubundin störf þeirra og getur það haft áhrif á gæði þeirrar hjúkrunar sem veitt er. Fjölmargir samverkandi þættir geta stuðlað að viðbótarvinnuálagi og þannig tafið eða hindrað árangursríka hjúkrun og vellíðan í starfi. Tilgangur þessarar rannsóknar var að meta viðbótarvinnuálag á hjúkrunarfræðinga á bráðasjúkrahúsi.Líflínan – Reynsla fólks með alvarlegan psoriasis sem er í meðferð með lífefnalyfjum
Inga Þorbjörg Steindórsdóttir, Þóra Jenný Gunnarsdóttir og Helga Jónsdóttir
Langvinnum sjúkdómum fer fjölgandi hér á landi sem gera auknar kröfur til heilbrigðiskerfisins um árangursrík og skilvirk meðferðarúrræði. Einn þessara sjúkdóma er húðsjúkdómurinn psoriasis en hér á landi hafa sjúklingar með alvarleg einkenni hans verið meðhöndlaðir með lífefnalyfjum í áratug. Tilgangur rannsóknarinnar er að lýsa reynslu fólks með alvarlegan psoriasis sjúkdóm af því að fá infliximab (Remicade®) meðferð.Ferlismat á nýju kynfræðsluefni fyrir unglinga
Sóley S. Bender
Við þróun kynfræðslunámsefnis fyrir unglinga er mælt með því að þeir séu virkir þátttakendur í ferlinu og er það talið mikilvægt til þess að námsefnið nái betur til þessa aldurshóps. Tilgangur þessarar rannsóknar var að forprófa nýtt námsefni meðal unglinga og skoða kosti og takmarkanir innleiðingar þess.Reynsla kvenna með geðhvörf
Jóhanna Bernharðsdóttir, Ása Björk Ásgeirsdóttir, Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir, Guðrún Kristófersdóttir og Helga Jónsdóttir
Tilgangur þessarar eigindlegu rannsóknar var að lýsa reynslu kvenna með geðhvörf. Úrtakið var þægindaúrtak átta kvenna á aldrinum 22 til 65 ára. Tekin voru tvö til þrjú, um það bil klukkustundarlöng hálfstöðluð, viðtöl við hvern þátttakanda yfir allt að þriggja ára tímabil. Gögnin voru þemagreind.Tengsl þekkingar, sjálfseflingar, streitu og tegundar sykursýki við langtímasykurgildið
Árún K. Sigurðardóttir og Kjartan Ólafsson
Þeim fjölgar ört sem fá sykursýki en sykursýkin getur valdið fylgikvillum sem rýra lífsgæði og auka kostnað við heilbrigðisþjónustu. Tilgangur rannsóknarinnar var að greina hvað hefur áhrif á langtímasykurgildið (HbA1c-gildið). Hugað er sérstaklega að þekkingu, sjálfseflingu og streitu sem og að bakgrunnsþáttum sem áhrif geta haft á langtímasykurgildið.Þættir sem hafa áhrif á vinnu hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða á bráðalegudeildum
Sigrún Gunnarsdóttir og Helga Bragadóttir
Tilgangur rannsóknarinnar var að varpa ljósi á vinnu hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða og hvaða þættir hafa áhrif á vinnunna á bráðalegudeildum.