Greinar
Þýðing og forprófun á vonleysiskvarða Becks
Rósa María Guðmundsdóttir og Jóhanna Bernharðsdóttir
Tilgangur þessarar rannsóknar var að þýða og forprófa vonleysiskvarða Becks og meta áreiðanleika og réttmæti íslensku þýðingarinnar. Vonleysiskvarðinn hefur aðallega verið notaður til að meta vonleysi meðal þunglyndra einstaklinga auk þess sem hann spáir fyrir um sjálfsvígshættu. Kvarðinn inniheldur 20 fullyrðingar og metur jákvæð og neikvæð viðhorf einstaklingsins til framtíðarinnar.Tengsl starfsmannaveltu, veikindafjarvista hjúkrunarfræðinga og hjúkrunarþyngdar sjúklinga
Lýsandi rannsókn
Halldóra Hálfdánardóttir, Elísabet Guðmundsdóttir og Helga Bragadóttir
Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvort tengsl væru á milli starfsmannaveltu og veikindafjarvista hjúkrunarfræðinga og hjúkrunarþyngdar sjúklinga. Því er oft haldið fram að vinnuálag á heilbrigðisstarfsfólk vegna hjúkrunarþyngdar sjúklinga sé of mikið og geti leitt til þess að starfsfólk gefist upp og segi starfi sínu lausu. Vinnuálag vegna hjúkrunarþyngdar sjúklinga er einnig talið tengjast hærri tíðni veikindafjarvista.Samvinna í heimahjúkrun eldri borgara
Kristín Björnsdóttir
Tilgangur þessarar rannsóknar var að öðlast þekkingu á vandaðri og árangursríkri heimaþjónustu sem stuðlar að vellíðan eldri borgara sem eru 80 ára og eldri og búa heima. Athyglin beindist að starfsháttum í heimahjúkrun.Starfstengd viðhorf og líðan hjúkrunarfræðinga á Landspítala
Anna Guðbjörg Gunnarsdóttir, Ása Guðbjörg Ásgeirsdóttir og Sigrún Gunnarsdóttir
Tilgangur rannsóknarinnar var að meta einkenni kulnunar meðal hjúkrunarfræðinga á bráðalegudeildum (lyf- og skurðlækninga) á Landspítala (LSH) og kanna tengsl við sálfélagslega þætti, einkum vinnuálag, sjálfræði og stuðning í starfi.Nýburar í áhættumati á vökudeild
Lýsandi rannsókn á eftirliti eins árgangs
Gróa Sturludóttir, Katrín Kolka Jónsdóttir, Margrét Eyþórsdóttir og Guðrún Kristjánsdóttir
Tilgangur rannsóknarinnar var að meta ástand þeirra barna sem ekki verða lögð inn á gjörgæslu í kjölfar áhættumats, ástæður fyrir matsinnlögn þeirra, lengd dvalar og gagnreynt fræðilegt samhengi þess áhættumats sem fram fer.Ungar mæður. Skynjaður stuðningur í barneignarferlinu
Hildur Sigurðardóttir og Sóley S. Bender
Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að skyggnast inn í reynsluheim unglingsmæðra og leitast við að öðlast dýpri sýn á skynjun þeirra á stuðningi og stuðningsleysi í barneignaferlinu.Ástand húðar og lífsgæði stómaþega
Margrét Hrönn Svavarsdóttir, Oddfríður Jónsdóttir og Geirþrúður Pálsdóttir
Tilgangur: Að meta lífsgæði stómaþega og kanna tíðni og alvarleika húðvandamála í kringum stóma og áhrif SenSura stómabúnaðar á þessa þætti.Að eldast heima
Reynsla og óskir eldri borgara
Sólborg Sumarliðadóttir og Kristín Björnsdóttir
Tilgangur þessarar rannsóknar var að lýsa reynslu eldri borgara, sem hafa átt við veikindi að stríða og búa við dvínandi færni til sjálfsumönnunar, af því að búa á eigin heimili. Jafnframt að lýsa þeirri aðstoð og aðstæðum sem eldri borgarar telja að þörf sé á til að þeir geti haldið áfram að búa heima.Að eldast heima
Reynsla og óskir eldri borgara
Sólborg Sumarliðadóttir og Kristín Björnsdóttir
Tilgangur þessarar rannsóknar var að lýsa reynslu eldri borgara, sem hafa átt við veikindi að stríða og búa við dvínandi færni til sjálfsumönnunar, af því að búa á eigin heimili. Jafnframt að lýsa þeirri aðstoð og aðstæðum sem eldri borgarar telja að þörf sé á til að þeir geti haldið áfram að búa heima.Þrýstingssár á Landspítala
Algengi, áhættumat og forvarnir
Guðrún Sigurjónsdóttir, Ásta St.Thoroddsen og Árún K. Sigurðardóttir
Tilgangur þessarar lýsandi þverskurðarrannsóknar var að kanna: a) algengi, alvarleika og staðsetningu þrýstingssára hjá inniliggjandi sjúklingum, b) helstu áhættuþætti sjúklinga að fá þrýstingssár, c) forvarnir sem beitt er á Landspítala.