Fagleg stefna
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga tekur þátt í og hefur frumkvæði að umræðu um hjúkrunar og heilbrigðismál með hagsmuni skjólstæðinganna að leiðarljósi. Félagið hefur lagt fram ýmsar tillögur til úrbóta varðandi heilbrigðisþjónustuna meðal annars á formi umsagna um þingsályktunartillögur um heilbrigðismál og í stefnu sinni varðandi mikilvæga þætti innan heilbrigðisþjónustunnar.