Greinar
Lyfjavinna hjúkrunarfræðinga og lyfjaöryggi
Í mars síðastliðnum fór fram námskeið í öruggri lyfjaumsýslu. Námskeiðið var haldið á Laugarvatni á vegum MEDICO-hópsins (Nordic Medication Educators’ Collaboration) sem er hópur kennara í hjúkrunarfæði á Norðurlöndunum og Eistlandi.
Notkun interRAI-upphafsmats til að meta þjónustuþörf í heimahjúkrun og félagslegri heimaþjónustu
Ingibjörg Hjaltadóttir og Hallveig Skúladóttir
Mikil fjölgun í hópi þeirra sem vilja búa í sjálfstæðri búsetu þrátt fyrir versnandi heilsufar og óska eftir þjónustu heimahjúkrunar gefur tilefni til þess að skoða kosti þess að nota samræmt matstæki, eins og interRAI-matstækið (Resident Assessment Instrument) sem metur heilsufar, færni og þjónustuþörf þjónustuþega.Athafnir og þátttaka eldri borgara
Margrét Brynjólfsdóttir, Guðrún Pálmadóttir og Sólveig Ása Árnadóttir
Árið 2013 voru 13,6% íbúa á sunnanverðum Vestfjörðum 65 ára eða eldri. Tilgangur verkefnisins var að rannsaka athafnir og þátttöku í daglegu lífi meðal heimabúandi eldri borgara á þessu svæði.Endurskilgreining á lífi og sjálfi: Reynsla yngra fólks af því að fá hjartaáfall
Birna Gestsdóttir, Árún K. Sigurðardóttir og Sigríður Halldórsdóttir, Heilbrigðisvísindasviði Háskólans á AkureyriLítið er vitað um reynslu „yngri“ Íslendinga af því að fá hjartaáfall. Tilgangur rannsóknarinnar var að auka þekkingu hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstétta á þeirri lífsreynslu að fá hjartaáfall „ungur“ svo að hægt sé að veita þessum sjúklingahóp viðeigandi hjúkrun og þjónustu.
Mat hjúkrunarfræðinga sem sjá um bráðatilvik á landsbyggðinni á eigin hæfni
Íris Kristjánsdóttir og Herdís Sveinsdóttir
Bráðamóttökum landsbyggðarinnar er ætlað að veita skammtímabráðaþjónustu sjúklingum sem hafa slasast eða veikst alvarlega. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvernig hjúkrunarfræðingar landsbyggðarinnar, sem taka á móti og sinna bráðveikum og slösuðum sjúklingum, meta hæfni sína.Reynsla fólks af auknum þroska í kjölfar sálrænna áfalla
Hulda Sædís Bryngeirsdóttir og Sigríður Halldórsdóttir
Rannsóknir á afleiðingum sálrænna áfalla hafa aðallega beinst að neikvæðum afleiðingum þeirra. Tilgangur þessarar rannsóknar var að auka þekkingu og dýpka skilning á reynslu fólks af sálrænum áföllum og auknum þroska í kjölfar þeirra.Setið fyrir svörum
PDFSamþætt geðhjúkrun
PDFMeð augum hjúkrunarfræðingsins
PDFAð þekkja tilfinningar — kynning
PDF