Hjukrun.is-print-version

Fréttir

  • 02. september 2020

    Yfirlýsing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

    Gerðardómur sem skipaður var eftir samþykkt miðlunartillögu ríkissáttasemjara í kjaradeilu Fíh og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs skilaði greinargerð og niðurstöðu í gær, þriðjudaginn 1. september.

  • 01. september 2020

    Greinargerð og niðurstaða gerðardóms

    Ríkissáttasemjari hefur birt greinargerð og úrskurð gerðardóms samkvæmt miðlunartillögu ríkissáttasemjara frá 21. júní 2020 í kjaradeilu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs.

  • 31. ágúst 2020

    Þjónusta á skrifstofu Fíh

    Skrifstofa Fíh er opin alla virka daga, en félagsmönnum er bent á að nýta sér rafræna samskiptahætti eftir fremsta megni. Þeir sem mæta á skrifstofu Fíh þurfa að huga að sóttvörnum.

  • 26. ágúst 2020

    Tímamótasigur fyrir hjúkrunarfræðinga og ljósmæður

    Hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum verður heimilt að ávísa hormónalyfjum til getnaðarvarna frá áramótum, samkvæmt nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra

  • 24. ágúst 2020

    Hjúkrunarþingi 2020 og málþingi Fíh og LMFÍ frestað

    Fyrirhugað var að halda Hjúkrunarþing 2020 þann 22. október og sameiginlegt málþing Fíh og LMFÍ 12. nóvember 2020, en báðum þingum hefur nú verið frestað sökum samfélagsaðstæðna og sóttvarna.

  • 14. ágúst 2020

    Samningafundur Fíh og Reykjarvíkurborgar

    Samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samninganefnd Reykjarvíkurborgar áttu samningafund í dag.

  • 04. ágúst 2020

    Aðalfundur 2020

    Aðalfundur Fíh verður haldinn fimmtudaginn 17. september 2020 á Grand Hótel Reykjavík, 18:00-21:00.

  • 10. júlí 2020

    Yfirlýsing frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og fagdeild geðhjúkrunarfræðinga

    Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og fagdeild geðhjúkrunarfræðinga tekur hér með heils hugar undir innihald yfirlýsingar fjögurra heilbrigðisstétta innan BMH sem send var út í kjölfar þess að frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974 (varsla) var fellt á Alþingi.

  • 09. júlí 2020

    Yfirlýsing frá stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh)

    Stjórn Fíh harmar það að lækna- og hjúkrunarráð LSH og SAK hafi verið lögð niður, líkt og gert var með lagabreytingu sem samþykkt var á Alþingi nú fyrir stuttu.

  • 08. júlí 2020

    Gerðardómur

    Skipan gerðardóms um afmarkaðan hluta launaliðar kjarasamnings hjúkrunarfræðinga.

  • 02. júlí 2020

    Sumarlokun skrifstofu

    Skrifstofa Fíh verður lokuð frá 13. júlí til 4. ágúst vegna sumarleyfa.

  • 02. júlí 2020

    Salir Fíh opna aftur

    Salir Fíh á Suðurlandsbraut 22 bjóðast nú aftur til notkunar fyrir félagsmenn

  • 30. júní 2020

    2. tölublað Tímarits hjúkrunarfræðinga komið út

    Samvinna og samhugur hefur einkennt undangengna mánuði, eða allt frá því að fyrsta tilfelli covid-19 greindist hér á landi. Fjöldi hjúkrunarfræðinga stóðu í framlínunni og allir lögðust á eitt með að læra og aðlagast nýjum verkferlum í áður óþekktum aðstæðum.

  • 27. júní 2020

    Miðlunartillaga samþykkt

    Atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu ríkissáttasemjara í máli Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkisjóðs er lokið.

  • 26. júní 2020

    Atkvæðagreiðslu lýkur kl. 10 á morgun

    Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga minnir á að rafrænni atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu ríkissáttasemjara lýkur kl. 10:00 laugardaginn 27. júní.

  • 24. júní 2020

    Atkvæðagreiðsla er hafin

    Atkvæðagreiðsla um miðlunartillögu ríkissáttasemjara er hafin. Fíh þakkar hjúkrunarfræðingum fyrir góða þátttöku á kynningarfundum.

  • 21. júní 2020

    Ríkissáttasemjari leggur fram miðlunartillögu, verkfalli afstýrt

    Ríkissáttasemjari hefur lagt fram miðlunartillögu í deilu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og fjármála- og efnhagsráðherra f.h. ríkissjóðs. Verkfalli sem hefjast átti 22. júní er því afstýrt og miðlunartillagan fer til kynningar og atkvæðagreiðslu hjá félagsmönnum Fíh og fjármála- og efnahagsráðherra.

  • 20. júní 2020

    Samningafundur 21. júní kl: 14:00

    Samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og samninganefnd ríkisins gerðu hlé á samningaviðræðum sínum seinnipartinn í dag.

  • 20. júní 2020

    Information for INA members on indefinite strike action

    Information regarding the strike, picketing, and a collection of frequently asked questions regarding the strike and answers to those questions have been translated into english.

  • 16. júní 2020

    Staða samningaviðræðna við ríkið 16. júní 2020

    Samninganefnd Fíh og samninganefnd ríkisins funduðu í gær í kjaradeildu félagsins og ríkisins. Fundurinn var tíðindalítill og ber enn mikið á milli aðila varðandi launalið nýs kjarasamnings. Áfram verður fundað í deilunni og er næsti fundur fyrirhugaður fimmtudaginn 18. júní kl. 10.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála