Hjukrun.is-print-version

Stjórnskipulag Fíh

Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins og er haldinn í maímánuði ár hvert. Allir félagsmenn eiga rétt til setu á fundinum, en atkvæðisrétt hafa einungis þeir sem hafa skráð sig með minnst viku fyrirvara. Aðalfundur er auglýstur með minnst 8 vikna fyrirvara.

Stjórn félagsins fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli aðalfunda. Hlutverk stjórnar er að móta stefnu og megináherslur félagsins í samræmi við stefnumörkun og ákvarðanir aðalfundar. Stjórn ber ábyrgð á fjárreiðum félagsins og starfseminni gagnvart aðalfundi. Stjórn félagsins skal funda að jafnaði einu sinni í mánuði.

Deildir félagsins vinna að eflingu og framgangi hjúkrunar innan fagsviðs eða landsvæðis, veita fræðslu um viðfangsefni hjúkrunar og efla fag- og félagsheild. Deildirnar eru stjórn og nefndum félagsins til ráðgjafar.

Anna Kristín B. Jóhannesdóttir

annakristin@hjukrun.is

Ásdís M. Finnbogadóttir

Varamaður

asdis@hjukrun.is

Guðbjörg Pálsdóttir

Formaður

gudbjorg@hjukrun.is

Guðlaug Ásta Gunnarsdóttir

gudlaug@hjukrun.is

Guðrún Yrsa Ómarsdóttir

gudrunyrsa@hjukrun.is

Halla Eiríksdóttir

Varaformaður

halla@hjukrun.is

Hildur Björk Sigurðardóttir

hildur@hjukrun.is

Hulda Björg Óladóttir

huldab@hjukrun.is

Hulda Sveinbjörg Gunnarsdóttir

Varamaður

hulda@hjukrun.is

Fundargerð aðalfundar 2019

 

17:00      Setning aðalfundar
                Guðbjörg Pálsdóttir formaður 

17:10      Kosning fundarstjóra og ritara

17:15      Skýrsla um starfsemi félagsins á liðnu starfsári
                Guðbjörg Pálsdóttir formaður 

17:30       Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
                Ársreikningur 2018 og skýringar
                Ársreikningur Rannsókna- og vísindasjóðs hjúkrunarfræðinga
                Ársreikningur Minningarsjóðs Kristínar Thoroddsen
                Ársreikningur Minningarsjóðs Hans Adolfs Hjartarsonar
                Sólveig Stefánsdóttir fjármálastjóri og Halla Eiríksdóttir gjaldkeri

17:50      Ákvörðun um félagsgjöld
                Halla Eiríksdóttir gjaldkeri

17:55      Afgreiðsla markmiða og starfsáætlunar næsta starfsárs
                Hildur Björk Sigurðardóttir meðstjórnandi

18:05      Kynning fjárhagsáætlunar næsta starfsárs
                Sólveig Stefánsdóttir fjármálastjóri og Halla Eiríksdóttir gjaldkeri 

18:15      Tillögur til lagabreytinga
                Arndís Jónsdóttir varaformaður 

18:30      Kjör í stjórn, nefndir og ráð
                Unnur Þormóðsdóttir formaður kjörnefndar 

18:45      Hjúkrunarfræðingar framtíðarinnar
                Valdís Bjarnadóttir, Curator félag hjúkrunarfræðinema við HÍ  
                Herdís Elín Þorvaldsdóttir, Eir félag nema í heilbrigðisvísindum við HA

19:00       Önnur mál
                 Ályktanir
                 Gísli Níls Einarsson meðstjórnandi

19:10       Niðurstöður kosninga
                 Unnur Þormóðsdóttir formaður kjörnefndar 

19:15       Heiðursfélagar
                 Guðbjörg Pálsdóttir formaður 

19:40       Léttar veitingar 

20:15       Afhending rannsóknarstyrks í tilefni 100 ára afmælis og hvatningarstyrkja
                 Guðbjörg Pálsdóttir formaður 

20:30      Afhending rannsóknarstyrkja B-hluta Vísindasjóðs
                Helga Sif Friðjónsdóttir formaður stjórnar Vísindasjóðs

21:00       Aðalfundi slitið
                 Guðbjörg Pálsdóttir formaður

 

Fundargögn aðalfundar Fíh 2017

Fundargerð aðalfundar Fíh 2017
Heildarskjal með öllum málaskjölum (3MB) 

Mál 1.0     Kosning fundarstjóra og ritara aðalfundar 

Mál 2.0     Skýrsla um starfsemi félagsins á liðnu starfsári

Mál 3.0.     Ársreikningur 2016 og Skýringar við ársreikning 2016
                 3.1   Ársreikningur Rannsókna- og vísindasjóðs hjúkrunarfræðinga
                 3.2   Ársreikningur Minningarsjóðs Kristínar Thoroddsen 
                 3.3   Ársreikningur Minningarsjóðs Hans Adolfs Hjartarsonar

Mál 4.0     Ákvörðun stjórnar um félagsgjöld                   

Mál 5.0     Markmiða- og starfsáætlun næsta starfsárs

Mál 6.0     Fjárhagsáætlun félagssjóðs næsta starfsár
                 6.1    Fjárhagsáætlun Orlofssjóðs næsta starfsár
                 6.2    Fjárhagsáætlun Starfsmenntunarsjóðs næsta starfsár
                 6.3    Fjárhagsáætlun Styrktarsjóðs næsta starfsár
                 6.4    Fjárhagsáætlun Vinnudeilusjóðs næsta starfsár
                 6.5    Fjárhagsáætlun Vísindasjóðs næsta starfsár

Mál 7.0    Starfsreglur sjóða og nefnda
                 7.1    Breytingar á starfsreglum fyrir Orlofssjóð Fíh  

Mál 8.0     Formannskjöri lýst og kjör í nefndir og ráð kynnt

Mál 9.0     Önnur mál
                      
9.1    Stofnun nýrra fagdeilda
                      
9.2    Stofnun nýrra landsvæðadeilda
                      9.3    Ályktanir


Stjórnir nefnda


Ása St. Atladóttir
Ólafur G. Skúlason
Ólöf Árnadóttir

Varamaður
Kolbrún Gísladóttir

Ingibjörg Pálmadóttir formaður
Bergdís Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Sigþrúður Ingimundardóttir

Kristín Linda Hjartardóttir
Páll Biering
Sigrún Sunna Skúladóttir
Sölvi Sveinsson
Þórunn Sigurðardóttir
Þorgerður Ragnarsdóttir
Þóra Jenný Gunnarsdóttir

Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Fíh, formaður samninganefndar
Eva Hjörtína Ólafsdóttir, kjararáðgjafi
Harpa Júlía Sævarsdóttir, sérfræðingur í kjaramálum
Brynja Dröfn Jónsdóttir, Landspítali
Sigríður Elísabet Árnadóttir, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Fíh, formaður samninganefndar
Eva Hjörtína Ólafsdóttir, kjararáðgjafi
Harpa Júlía Sævarsdóttir, sérfræðingur í kjaramálum
Hrefna Guðmundsdóttir, hjúkrunarstjóri
Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen, forstöðumaður Droplaugarstaða

Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Fíh, formaður samninganefndar
Eva Hörtína Ólafsdóttir, kjararáðgjafi
Harpa Júlía Sævarsdóttir, sérfræðingur í kjaramálum

Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Fíh, formaður samninganefndar
Eva Hörtína Ólafsdóttir, kjararáðgjafi
Harpa Júlía Sævarsdóttir, sérfræðingur í kjaramálum

 Aðalheiður D. Matthíasdóttir, formaður
Birna Óskarsdóttir
Guðbjörg Svava Ragnarsdóttir
Guðríður K. Þórðardóttir
Harpa Þöll Gísladóttir
Ragnhildur Rós Indriðadóttir
Þórgunnur Hjaltadóttir

Stjórnir sjóða


Ása María Guðjónsdóttir
Heiða Björk Gunnlaugsdóttir
Inga Valborg Ólafsdóttir
Lovísa Agnes Jónsdóttir
Sigurður Ýmir Sigurjónsson

Eva Hjörtína Ólafsdóttir, formaður, tilnefnd af Fíh
Ásdís Guðmundsdóttir, tilnefnd af Fíh
Aldís Magnúsdóttir, tilnefnd af Fjármálaráðuneyti
Anna Guðmundsdóttir, tilnefnd af Reykjavíkurborg
Steinunn Helga Björnsdóttir starfsmaður sjóðsins

Aðalheiður D. Matthíasdóttir formaður
Sigrún Barkardóttir
Svanlaug Guðnadóttir

Varamenn:
Baldvina Hafsteinsdóttir
Ellen Stefanía Björnsdóttir

Marianne Klinke formaður
Árún K. Sigurðardóttir
Brynja Örlygsdóttir
Rannveig Jónasdóttir

Birgir Örn Ólafsson formaður
Anna Soffía Guðmundsdóttir
Eva Kristjánsdóttir

Varamaður: 
Olga Birgitta Bjarnadóttir
Eva Hjörtína Ólafsdóttir

Guðbjörg Pálsdóttir formaður
Herdís Sveinsdóttir
Sigríður Zoéga

Guðbjörg Pálsdóttir formaður
Herdís Sveinsdóttir
Hrund Sch. Thorsteinsson

Guðbjörg Pálsdóttir formaður
Herdís Sveinsdóttir
Sigríður Gunnarsdóttir
Steinunn Sigurðardóttir

Kjaramál og starfsumhverfi

Meginverkefni stjórnar eru kjaramál og undirbúningur fyrir komandi kjarasamninga með áherslu á að leiðrétta kynbundinn launamun. Haldin verður kjararáðstefna og kannanir gerðar á kjörum, starfsumhverfi, öryggi og vinnuvernd. Lögð verður áhersla á að knýja fram lagasetningu um mönnunarviðmið í heilbrigðiskerfinu til að bæta öryggi og aðbúnað hjúkrunarfræðinga í starfi. Einnig lagabreytingar í tengslum við tilkynningar, rannsókn og málsmeðferð alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu.

Áfram verður öflug og aðgengileg fræðsla fyrir trúnaðarmannaráð og trúnaðarmenn.

Hjúkrun og samfélagið

Lögð verður áhersla á fræðslu og stuðning fyrir hjúkrunarfræðinga til að mæta breyttum þörfum samfélagsins eftir heimsfaraldur.

Haldið verður áfram þróun á stafrænum lausnum til að bæta þjónustu við félagsmenn. Stuðningur og fræðsla við erlenda hjúkrunarfræðinga verður aukinn. Unnið verður samkvæmt aðgerðaáætlun á grundvelli viðhorfskannana til karlkyns hjúkrunarfræðinga til að stéttin endurspegli betur samfélagið.

Þekking og nýsköpun í hjúkrun

Lögð er áhersla á áframhaldandi þróun, þekkingu og vísindarannsóknum í hjúkrun. Auka á frekara samstarf fag- og landsvæðadeilda um þekkingu í hjúkrun. Stuðla að aukinni nýsköpun í hjúkrun og hagkvæmni í heilbrigðiskerfinu ásamt nýjum þjónustuleiðum í samræmi við þarfir notenda hennar.

Forysta til árangurs

Hjúkrunarfræðingar sýni frumkvæði og forystu við skipulagningu heilbrigðisþjónustu og veitingu hennar á öllum þjónustustigum. Áhersla verður á að efla leiðtoga í hjúkrun samkvæmt Alþjóðaráði hjúkrunarfræðinga (ICN) og Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO).

Einnig þarf að endurvekja stöðu yfirhjúkrunarfræðings innan stjórnsýslunnar í samræmi við tilmæli WHO til þess að bæta heilbrigðisþjónustu í landinu.

Fjölga þarf áfram markvisst sérfræðingum í hjúkrun og verður unnið samkvæmt stefnumiðum í stefnu félagsins til 2030 um forystu til árangurs.

Gildi

Gildi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga eru Ábyrgð, Áræði og Árangur. 

Ábyrgðin felur í sér að nýta þekkingu og færni með þarfir skjólstæðingsins í fyrirrúmi og í samræmi við siðareglur, lög og reglugerðir. Áræðið stendur fyrir framsækni og forystu í baráttu fyrir öflugri heilbrigðisþjónustu, ásættanlegum kjörum og heilsueflingu. Árangurinn byggir á að félagsmenn nái settum markmiðum um fagmennsku, kjör, og samfélagslegt hlutverk.

Félagið

Félagið er samtök hjúkrunarfræðinga þar sem hjúkrunarfræðingar vinna saman að þróun hjúkrunar, heilbrigðisþjónustu og heilsueflingu. Félagsmenn eru kjarni starfseminnar og árangur félagsins byggir á virkri þáttöku þeirra. Félagið er hagsmunasamtök hjúkrunarfræðinga og stendur vörð um réttindi, skyldur og kjör hjúkrunarfræðinga.

Sýn

Félagið vinnur að árangursríkri og öruggri heilbrigðisþjónustu með eflingu hjúkrunar, hagsmunagæslu á sviði kjara- og réttindamála hjúkrunarfræðinga ásamt því að vinna að aukinni þátttöku þeirra í þróun og stefnumótun á hjúkrunar- og heilbrigðisþjónustu.

Stefnumið til 2030

Stefnumið til 2030

Stefna félagsins

Stefna félagsins

Hjúkrunar- og heilbrigðismál

Hjúkrunar- og heilbrigðismál

Sykepleiernes samarbeide i Norden

Samvinna hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum (SSN) er svæðisbundin samvinna stéttarfélaga hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndunum sex. Ísland hefur verið aðili að samtökunum frá 1923.

Hlutverk SSN er meðal annars að beina athygli sinni að þróun og eiga frumkvæði í málum sem hafa áhrif á hjúkrunarfræðinga og hjúkrun á norðurlöndum.

Samvinnan á að leggja sitt af mörkum til áframhaldandi þróunar hinnar almennu heilbrigðisþjónustu og hjúkrunar á Norðurlöndum. Til að styrkja þessa þróun á SSN að eiga samvinnu við og hugsanlega sækja um aðild að viðeigandi norrænum, evrópskum og alþjóðlegum samtökum. Opinbert tungumál SSN eru skandinavísku tungumálin, sænska, danska og norska, með möguleika á að nota ensku, bæði munnlega og skriflega.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga tekur virkan þátt í starfi SSN. Formenn aðildarsamtakanna mynda stjórn samtakanna. Fulltrúi Fíh í stjórn SSN er Guðbjörg Pálsdóttir formaður Fíh.

  

The European Federation of Nurses Associations

The European Federation of Nurses Associations (EFN)eða Evrópusamtök hjúkrunarfélaga er ráðgefandi vettvangur hjúkrunarfræðinga gagnvart ESB. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga gerðist aðili að þeim í mars 1998.

Með aðild að EFN gefst félaginu möguleiki á að fylgjast með og hafa áhrif á stefnu ESB um hjúkrunarmál í framtíðinni, en stefna ESB í þeim málefnum sem og öðrum hefur bein áhrif á Íslandi vegna EES samningsins. Fundir samtakanna eru haldnir tvisvar á ári.

 

 

ICN - The International Council of Nurses

Alþjóðaráð hjúkrunarfræðinga (ICN) eru samtök hjúkrunarfélaga í rúmlega 130 löndum. Ráðið var stofnað árið 1899 og eru elstu og víðfeðmustu samtök heilbrigðisstétta í heiminum. Hjúkrunarfræðingar stýra ráðinu og markmið þess er að tryggja: góða hjúkrun fyrir alla, vinna að skýrri stefnumótun í heilbrigðismálum um heim allan, framfarir í hjúkrunarþekkingu og auka virðingu hjúkrunar um víða veröld. Jafnframt vinnur ráðið að því að ávallt séu hæfir og ánægðir hjúkrunarfræðingar við störf.

Siðareglur Alþjóðaráðsins liggja til grundvallar starfsemi hjúkrunarfræðinga um allan heim. Staðlar ráðsins, leiðbeiningar og stefnumörkun varðandi hjúkrunarmálefni, menntun, stjórnun, rannsóknir og þjóðfélagsmál eru viðurkenndir á alþjóðavísu.

Alþjóðaráðið hefur sett sér þrjú aðalmarkmið og fimm leiðbeinandi megin gildi

Markmið:
að auka einingu hjúkrunar um allan heim
að stuðla að alþjóðlegum framförum hjúkrunarfræðinga og hjúkrunar
að hafa áhrif á heilbrigðis-, félags-, efnahags- og menntastefnu

Megin gildi:
1. Forysta byggð á hugsjón
2. Nýsköpun
3. Samstaða
4. Ábyrgð
5. Félagslegt réttlæti

Höfuðstöðvar Alþjóðaráðs hjúkrunarfræðinga eru í Genf í Sviss. Nánari upplýsingar um málefni Alþjóðaráðsins eru á vefsíðu þess.

 

Fannst þér efnið hjálplegt?

Af hverju ekki?

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála